Nazif í fimm ára fangelsi

Kallað var eftir því að ráðamenn í stjórnartíð Hosni Mubarak …
Kallað var eftir því að ráðamenn í stjórnartíð Hosni Mubarak yrðu látnir sæta ábyrgð fyrir áralanga spillingu. AFP

Egypsk­ur dóm­stóll dæmdi í dag Ah­med Nazif, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráðherra lands­ins, í fimm ára fang­elsi og til að greiða jafn­v­irði 6,8 millj­óna doll­ara í sekt vegna spill­ing­ar. Nazif sat í embætti í valdatíð Hosni Mubarak, en var neydd­ur til að segja af sér í viðleitni for­set­ans til að friðþægja mót­mæl­end­ur árið 2011.

Nazif var fund­inn sek­ur um að hafa not­fært sér stöðu sína til að afla sér auðs upp á 8,2 millj­ón­ir doll­ara. Hann var m.a. ákærður fyr­ir fast­eigna­brask og að hafa þegið ólög­mæt­ar bón­us­greiðslur.

Mubarak og marg­ir fyrr­ver­andi ráðherr­ar hafa verið dregn­ir fyr­ir dóm­stóla eft­ir að for­set­an­um var steypt af stóli, en há­vær köll heyrðust eft­ir því að þeir yrðu látn­ir sæta ábyrgð fyr­ir ára­langa spill­ingu.

Marg­ir hafa verið sýknaðir en Mubarak og syn­ir hans tveir voru dæmd­ir í þriggja ára fang­elsi vegna spill­ing­ar fyrr á þessu ári. Vel má vera að þeir verði frjáls­ir ferða sinna án langt um líður, þar sem þeir hafa setið í varðhaldi stór­an hluta síðustu fjög­urra ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert