Fresta úrskurði í máli blaðamanna

Blaðamaðurinn Peter Greste.
Blaðamaðurinn Peter Greste. AFP

Egypsk­ur dóm­stóll hef­ur frestað um mánuð upp­kvaðningu dóms í máli þriggja blaðamanna Al-Jazeera sem eru sakaðir um að hafa birt rang­ar frétt­ir og stutt við Bræðralag múslima, stjórn­mála­flokk sem er nú skil­greind­ur sem hryðju­verka­sam­tök í Egyptalandi.

Þeir Peter Greste, Mohammed Fah­my og Baher Mohamed voru í júlí í fyrra dæmd­ir í allt að tíu ára fang­elsi. Þeim var hins veg­ar sleppt úr haldi fyrr á þessu ári og var réttað aft­ur í máli þeirra. Þeir hafa neitað sök.

Dóm­ur verður kveðinn upp 29. ág­úst næst­kom­andi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert