Áfrýja dauðadómi Morsis

Mohamed Morsi.
Mohamed Morsi. AFP

Lögmaður Mohamed Morsi, fyrr­ver­andi for­seta Egypta­lands, og fleiri manna sem voru dæmd­ir til dauða í maí­mánuði hef­ur áfrýjað dómn­um.

Morsi var fund­inn sek­ur um að hafa frelsað fanga úr fang­les­um á meðan upp­reisn­inni gegn Hosni Mubarak, þáver­andi for­seta Egypta­lands, stóð árið 2011.

„Við höf­um áfrýjað til Cassati­on-dóm­stóls­ins fyr­ir hönd allra fang­anna, þar á meðal Morsi,“ sagði lögmaður­inn Abdel Mo­neim Abdel Masqsud.

Yfir hundrað aðrir sak­born­ing­ar, sem tóku þátt í aðgerðunum með Morsi, hafa einnig verið dæmd­ir til dauða.

Í apr­íl­mánuði var Morsi jafn­framt dæmd­ur í tutt­ugu ára fang­elsi vegna morða á mót­mæl­end­um í for­setatíð hans.

Morsi var hrak­inn frá völd­um af hern­um í júlí árið 2013 í kjöl­far fjöl­menntra og tíðra mót­mæla á göt­um úti. Stjórn­völd bönnuðu einnig stjórn­mála­flokk hans og hand­tóku þúsund­ir stuðnings­manna hans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert