Fulltrúar 171 ríkis skrifuðu í dag undir nýjan loftlagssamning Sameinuðu þjóðanna sem samþykktur var í París á síðasta ári. Er þetta metfjöldi undirskrifta á alþjóðlegum samningi. Fulltrúar fimmtán ríkja höfðu þegar skrifað undir samninginn.
Undirskriftarathöfnin fór fram í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. „Samningurinn í París mun móta allar kynslóðir framtíðarinnar á djúpstæðan hátt,“ sagði aðalritari Sameinuðu þjóðanna Ban Ki-Moon við athöfnina í dag. „Það er þeirra framtíð sem er í húfi.“
Við athöfnina sagði hann að jarðarbúar væru nú að upplifa methita. „Við erum í kapphlaupi við tímann og ég hvet allar þjóðir til þess að standa á bakvið samninginn. Í dag skrifum við undir nýjan sáttmála fyrir framtíðina.“
Loftlagsstjóri Sameinuðu þjóðanna, Christiana Figueres sagði í dag að nú þyrftu flest lönd að fara heim með samninginn og hefja aðgerðir til þess að standa við hann.
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, skrifaði undir samninginn fyrir hönd Íslands. Eins og kunnugt er er tilgangur samkomulagsins sá að halda hlýnun jarðar „vel innan við“ 2°C og að keppast að því að hún verði ekki meiri en 1,5°C ef mögulegt er.