Norðmenn stóðust prófraunina

Jens Stoltenberg, fyrrum forsætisráðherra Noregs.
Jens Stoltenberg, fyrrum forsætisráðherra Noregs. AFP

„Við vor­um mörg sem misst­um okk­ar heitt­elskuðu á þess­um degi,“ sagði Jens Stolten­berg, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráðherra Nor­egs, við guðsþjón­ustu í dóm­kirkj­unni í Osló í morg­un í til­efni þess að fimm ár eru í dag liðin frá fjölda­morðunum í Osló og Útey.

Stolten­berg, sem er nú fram­kvæmda­stjóri Atlants­hafs­banda­lags­ins, var for­sæt­is­ráðherra Nor­egs á þess­um degi, 22. júlí 2011.

Ungliðahreyf­ing norska Verka­manna­flokks­ins var við sum­ar­dvöl í Útey þegar And­ers Behring Brei­vik gekk þar á land og hóf skot­hríð með þeim af­leiðing­um að 69 manns létu lífið. Átta til viðbót­ar létu lífið í sprengju­árás Brei­viks á stjórn­ar­ráðsbygg­ing­arn­ar í miðborg Osló­ar fyrr um dag­inn.

Nor­eg­ur stóðst prófraun­ina

Stolten­berg sagði að þrátt fyr­ir öll líf­in sem týnd­ust og alla sorg­ina hefðu voðaverk­in einnig „dregið fram það besta“ í Norðmönn­um. „22. júlí kallaði fram það sem við vilj­um vera,“ sagði hann. „Nor­eg­ur, okk­ar litla land, hef­ur staðist þá prófraun.“

Frétt mbl.is: Norsk gildi höfðu sig­ur

Hann þakkaði öll­um þeim sem hjálpuðu til þenn­an dag - starf þeirra hefði verið ómet­an­legt. Hann tók þó fram að Norðmenn gætu dregið marga lær­dóma af at­b­urðunum og þá ekki síst því hvernig lög­regl­an brást við.

Mark­miðið til framtíðar væri að koma í veg fyr­ir að önn­ur eins hryðju­verk gætu verið fram­in.

AFP

Bar­átt­an mun taka tíma

„Við stóðum sam­an. Jafn­vel þótt árás­irn­ar hefðu verið sárs­auka­full­ar, þá kölluðu þær fram svo margt gott í Norðmönn­um,“ sagði hann.

Árás­in hefði ekki verið „blind“. Hún hefði beinst gegn grunn­gild­um norsks sam­fé­lags. „Þetta var árás á gagn­kvæmt traust og umb­urðarlyndi í okk­ar sam­fé­lagi.“

Líkt og aðrir ræðumenn, þar á meðal Erna Sol­berg, for­sæt­is­rá­herra Nor­egs, minnt­ist Stolten­berg á fleiri ný­leg­ar hryðju­verka­árás­ir í heim­in­um, svo sem í Par­ís, Brus­sel, An­kara, Ist­an­búl, Or­lando, Kabúl og Bagdad.

Stolten­berg sagði að bar­ist yrði gegn hryðju­verk­um, ekki aðeins með lög­reglu- og hervaldi, „held­ur líka með gild­um okk­ar. Í Nor­egi urðu gild­in okk­ar vörn­in okk­ar.“

Hann sagði að bar­átt­an ætti eft­ir að taka tíma, en með gild­in okk­ar, svo sem lýðræði, gagn­sæi og umb­urðarlyndi, að vopni ætt­um við eft­ir að bera sig­ur úr být­um.

AFP
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert