Ógildir dóm yfir forsetanum fyrrverandi

Morsi meðan á eins árs valdatíð hans stóð.
Morsi meðan á eins árs valdatíð hans stóð. AFP

Áfrýj­un­ar­dóm­stóll í Egyptalandi hef­ur ógilt ann­an af tveim­ur lífstíðardóm­um yfir Mohamed Morsi, fyrr­ver­andi for­seta lands­ins. Er þetta ann­ar sig­ur hans fyr­ir dóm­stól­um á aðeins einni viku.

Í síðustu viku sneri sami dóm­stóll við dauðadómi yfir Morsi, en hann hafði verið fund­inn sek­ur um að taka þátt í óeirðum og of­beldi gegn lög­reglu­mönn­um árið 2011, sem á end­an­um steyptu þáver­andi for­seta, Hosni Mubarak, af stóli.

Morsi var fyrsti leiðtogi Egypta­lands til að vera kjör­inn í frjáls­um kosn­ing­um, sem haldn­ar voru eft­ir hið svo­kallaða Ar­ab­íska vor.

Ár hans á valda­stóli ein­kennd­ist þó af sundr­ungu og var hon­um steypt af stóli af þáver­andi hers­höfðingja og nú­ver­andi for­seta, Abdel Fattah al-Sisi, í kjöl­far fjöl­mennra mót­mæla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert