Obama mildar dóminn yfir Manning

Chelsea Manning verður látin laus í maí á þessu ári.
Chelsea Manning verður látin laus í maí á þessu ári. Wikipedia

Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, mildaði í dag dóm­inn yfir upp­ljóstr­ar­an­um Chel­sea Mann­ing.

Mann­ing, sem var hermaður í Banda­ríkja­her, var dæmd í 35 ára fang­elsi árið 2013 fyr­ir að leka gögn­um til Wiki­Leaks.

Hún hef­ur nú setið í fang­elsi í sex ár fyr­ir að leka árið 2010 þúsund­um gagna í eigu banda­ríska rík­is­ins, s.s. sam­skipt­um sendi­ráða og mynda­bands­upp­tök­um sem varpa ljósi á aðgerðir banda­ríska hers­ins.  Fljót­lega eft­ir að dóm­ur­inn féll greindi Mann­ing frá því að hún væri kona í karl­manns­lík­ama. 

Frétt mbl.is: Mann­ing á stutt­lista Obama.

Frétta­vef­ur BBC seg­ir Mann­ing nú verða látna lausa úr fang­elsi 17. maí á þessu ári í stað þess að sitja inni til 2045, en áður hafði verið greint frá því að nafn Mann­ing kynni að vera á stutt­lista yfir ein­stak­linga sem óskað er eft­ir að Obama náði áður en hann læt­ur af embætti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert