Snowden tvö ár enn í Rússlandi

Edward Snowden.
Edward Snowden. AFP

Rúss­nesk stjórn­völd hafa ákveðið að fram­lengja dval­ar­leyfi upp­ljóstr­ar­ans Edw­ard Snowd­en um tvö ár til viðbót­ar í land­inu, seg­ir í til­kynn­ingu frá ut­an­rík­is­ráðuneyti Rúss­lands.  

Yf­ir­lýs­ing­in frá Rússlandi kem­ur strax eft­ir að Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, mildaði í gær dóm­inn yfir upp­ljóstr­ar­an­um Chel­sea Mann­ing. Mann­ing, sem var hermaður í Banda­ríkja­her, var dæmd í 35 ára fang­elsi árið 2013 fyr­ir að leka gögn­um til Wiki­Leaks. Hún verður lát­in laus í maí á þessu ári en hún hef­ur setið í fang­elsi frá ár­inu 2010.

Frétt mbl.is: Obama mild­ar dóm­inn yfir Mann­ing

Snowd­en var grein­andi hjá banda­rísku þjóðarör­ygg­is­stofn­un­inni (NSA) er hann ljóstraði upp um ýmis leynigögn banda­rískra stofn­ana. Þar í landi á hann yfir höfði sér ákær­ur sem gætu orðið til þess að hann þarf að afplána allt að 30 ára fang­els­is­dóm.

Snowd­en var ekki á svo­kölluðum stutt­lista Obama sem náði yfir þá ein­stak­linga sem gætu fengið mild­ari refs­ingu.

Þegar ljóst var að dóm­ur Mann­ing hafi verið mildaður sagði Snowd­en á Twitter: „Ég segi það í hrein­skilni og af öllu mínu hjarta: Takk Obama.“  

Ekki náðist í lög­fræðing Snowd­en, Anatoly Kuch­erena, til að staðfesta ákvörðun rúss­neskra stjórn­valda.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert