Segja lögregluna á hælum sér

Edward Snowden.
Edward Snowden. AFP

Hæl­is­leit­end­ur frá Sri Lanka sem komn­ir eru til Hong Kong ótt­ast að lög­regl­an sé á hæl­um þeirra fyr­ir að hafa skotið skjól­húsi yfir banda­ríska upp­ljóstr­ar­ann Edw­ard Snowd­en í borg­inni. 

Í frétt BBC er haft eft­ir lög­fræðingi þeirra að lög­reglu­menn frá Sri Lanka hafi komið til Hong Kong í leit að þeim. Lög­reglu­yf­ir­völd neita þessu.

Lögmaður­inn seg­ir að í það minnsta tveir rann­sókn­ar­lög­reglu­menn frá Sri Lanka hafi komið til Hong Kong í des­em­ber og leitað mann­anna. Hann seg­ir að lög­reglu­menn­irn­ir hafi sagt öðrum Sri Lanka-mönn­um í Hong Kong hverj­ir þeir væru. Þá hafi þeir verið með gögn og ljós­mynd­ir meðferðis.

Talsmaður lög­regl­unn­ar á Sri Lanka seg­ir þess­ar frétt­ir „hreina lygi“.

Hæl­is­leit­end­urn­ir sem um ræðir hýstu Edw­ard Snowd­en í Hong Kong í tvær vik­ur í júní árið 2013 eft­ir að hann flúði frá Banda­ríkj­un­um í kjöl­far birt­ing­ar trúnaðar­upp­lýs­inga frá Þjóðarör­ygg­is­stofn­un Banda­ríkj­anna.

Snowd­en flúði svo þaðan og til Rúss­lands. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert