Hefur ekki sætt ómannúðlegri meðferð

Breivik í dómsal í janúar.
Breivik í dómsal í janúar. AFP

Ein­angr­un­ar­vist fjölda­morðingj­ans And­ers Behring Brei­vik í norsku fang­elsi telst ekki til „ómannú­legr­ar meðferðar“, sam­kvæmt niður­stöðu áfrýj­un­ar­dóm­stóls sem snéri dómi und­ir­rétt­ar nú fyr­ir stundu.

„Brei­vik sæt­ir ekki, og hef­ur ekki sætt, pynt­ing­um eða ómannúðlegri eða niður­lægj­andi meðferð,“ stend­ur m.a. í úr­sk­urði dóm­stóls­ins.

Lögmaður hins 38 ára Brei­vik, sem myrti 77 árið 2011, seg­ir að hann hygg­ist áfrýja dóm­in­um til hæsta­rétt­ar.

Það var eft­ir­lif­end­um og ætt­ingj­um þeirra sem lét­ust í Osló og í Útey mikið áfall þegar und­ir­rétt­ur komst að þeirri niður­stöðu í apríl í fyrra að norska ríkið hefði brotið gegn Brei­vik með því að halda hon­um í ein­angr­un.

Brei­vik hef­ur ekki verið leyft að um­gang­ast aðra fanga, sem lög­menn hans segja hafa haft al­var­lega áhrif á and­lega heilsu hans.

Ríkið áfrýjaði úr­sk­urði und­ir­rétt­ar.

„Það eru eng­ar greini­leg­ar vís­bend­ing­ar um að Brei­vik hafi orðið fyr­ir ein­angr­un­arskaða á meðan fang­elsis­vist hans hef­ur staðið,“ sagði  m.a. í dóm­in­um sem kveðinn var upp í dag.

Áfrýj­un­ar­dóm­stóll­inn komst að sömu niður­stöðu og und­ir­rétt­ur varðandi friðhelgi einka­lífs  Brei­vik, sem var ósátt­ur við að póst­send­ing­ar hans væru skoðaðar. Hvor­ug­um dóm­stól þótti sú til­hög­un ganga of langt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert