Í hættu eftir að hafa aðstoðað Snowden

Nadeeka og Supun Thilina Kellapatha og sonur þeirra Danath skutu …
Nadeeka og Supun Thilina Kellapatha og sonur þeirra Danath skutu skjólshúsi yfir Snowden á sínum tíma og nú eru þau í lífshættu. AFP

Flótta­menn sem skutu skjól­húsi yfir banda­ríska upp­ljóstr­ar­ann Edw­ard Snowd­en í Hong Kong hafa sótt um hæli í Kan­ada. Lög­menn þeirra segja þau í lífs­hættu fyr­ir að hafa veitt Snowd­en aðstoð árið 2013.

Fólkið, sem er frá Sri Lanka og er ör­snautt, faldi Snowd­en á heim­ili sínu þegar hann flúði frá Banda­ríkj­un­um til borg­ar­inn­ar í kjöl­far birt­ing­ar á leyniskjöl­um Þjóðarör­ygg­is­stofn­un­ar Banda­ríkj­anna. Fyrst var greint frá þætti þeirra í fyrra og segja lög­menn þeirra að þau séu í hættu í Hong Kong. 

Fólkið seg­ir að þau hafi ít­rekað verið yf­ir­heyrð vegna tengsla sinna við Snowd­en af yf­ir­völd­um í Hong Kong. Jafn­framt sæki leyniþjón­usta Sri Lanka einnig fast að þeim og hef­ur sent full­trúa sína til Hong Kong. 

Kanadíski lögmaður­inn Marc-Andre Segu­in seg­ir að þetta sé spurn­ing um líf eða dauða en hann er í hópi lög­manna sem reyn­ir að vekja at­hygli á stöðu fólks­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka