Hjálpuðu Snowden og er synjað um hæli

Edward Snowden býr nú í Moskvu. Fólkinu sem skaut skjólshúsi …
Edward Snowden býr nú í Moskvu. Fólkinu sem skaut skjólshúsi yfir hann í Hong Kong hefur verið synjað um hæli þar. AFP

Yf­ir­völd í Hong Kong hafa hafnað hæl­is­beiðni hóps hæl­is­leit­enda, sem veittu upp­ljóstr­ar­an­um Edw­ard Snowd­en húsa­skjól. Snowd­en er eft­ir­lýst­ur af banda­rísk­um stjórn­völd­um fyr­ir að hafa lekið upp­lýs­ing­um árið 2013 um víðtæk­ar njósn­ir NSA. 

Hæl­is­leit­end­urn­ir, sem eru frá Srí Lanka og Fil­ipps­eyj­um skutu skjóls­húsi yfir Snowd­en í hálf­an mánuð eft­ir að hann flúði frá Banda­ríkj­un­um.

BBC hef­ur eft­ir lög­fræðing­um hæl­is­leit­end­anna að hæl­is­beiðni þeirra hafi verið synjað af því að lönd þeirra hafi verið met­in ör­ugg og sagði einn lög­fræðing­anna synj­un­ina „órétt­láta“.

Hóp­ur­inn hef­ur einnig óskað eft­ir hæli í Kan­ada og hef­ur nú 14 daga til að áfrýja ákvörðun­inni áður en þeim verður vísað úr landi.

Hæl­is­leit­end­urn­ir eru hjón frá Srí Lanka með tvö börn og fil­ipps­eysk kona með eitt barn, en það var lög­fræðing­ur þeirra, Robert Tib­bo, sem kynnti þau fyr­ir Snowd­en.

Hann fór með Snowd­en heim til þeirra skömmu eft­ir að greint var frá lek­an­um og þar skutu þau húsa­skjóli yfir hann í tvær vik­ur.

Stutt er síðan greint var frá því hverj­ir hefðu hýst Snowd­en og var það raun­ar ekki gert fyrr en skömmu áður en mynd Oli­ver Stone um upp­ljóstr­ar­ann var gef­in út.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert