Leitar til Mannréttindadómstóls Evrópu

Breivik í dómsal í janúar.
Breivik í dómsal í janúar. AFP

Fjölda­morðing­inn And­ers Behring Brei­vik, sem myrti 77 manns árið 2011, ætl­ar að fara með mál sitt vegna „ómannúðlegr­ar“ meðferðar í fang­elsi til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu.

Þetta ákvað hann eft­ir að Hæstirétt­ur Nor­egs ákvað að taka ekki fyr­ir áfrýj­un­ar­beiðni hans. Það þýðir að úr­sk­urður áfrýj­un­ar­dóm­stóls frá því í mars mun standa óhreyfður.

Þar var norska ríkið sýknað af ásök­un­un­um um að hafa brotið á rétt­ind­um Brei­vik.

„Við ætl­um með málið til Strass­borg­ar eins fljótt og auðið er,“ sagði Oy­stein Storrvik, lög­fræðing­ur Brei­vik.

„Við höf­um ávallt verið bún­ir und­ir þann mögu­leika að málið okk­ar fyr­ir norsk­um dóm­stól­um myndi ekki ganga vel.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert