Verður Farage í viðræðunefndinni?

Nigel Farage, fyrrverandi leiðtogi Breska sjálfstæðisflokksins.
Nigel Farage, fyrrverandi leiðtogi Breska sjálfstæðisflokksins. AFP

Fram kem­ur í bresk­um fjöl­miðlum að Lýðræðis­legi sam­bands­flokk­ur­inn (DUP) kunni að fara fram á það í viðræðum við breska Íhalds­flokk­inn um sam­starf flokk­anna að Nig­el Fara­ge, fyrr­ver­andi leiðtogi Breska sjálf­stæðis­flokks­ins, verði einn af full­trú­um breskra stjórn­valda í viðræðum um út­göngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Fram kem­ur á frétta­vefn­um Ya­hoo News UK að þrýst sé á Th­eresu May, for­sæt­is­ráðherra Bret­lands og leiðtoga Íhalds­flokks­ins, að veita Fara­ge hátt­sett embætti í tengsl­um við viðræðurn­ar við Evr­ópu­sam­bandið og gera hann enn­frem­ur að lá­v­arði. Að öðrum kosti gæti Breski sjálf­stæðis­flokk­ur­inn sótt að Íhalds­flokkn­um sem er í sár­um eft­ir þing­kosn­ing­arn­ar á fimmtu­dag­inn þar sem hann missti þing­meiri­hluta sinn.

Hugs­an­legt er talið að til nýrra þing­kosn­inga gæti komið í Bretlandi inn­an ekki langs tíma og jafn­vel talað um næsta haust þar sem eng­inn flokk­ur náði hrein­um meiri­hluta í breska þing­inu. Fara­ge hef­ur sagt að hann gæti hugs­an­lega snúið aft­ur í stjórn­mál­in í Bretlandi en hann sit­ur á Evr­ópuþing­inu fyr­ir Breska sjálf­stæðis­flokk­inn.

May berst nú í bökk­um við að halda í stjórn­artaum­ana í Bretlandi og tryggja sér þing­meiri­hluta og áfram­hald­andi veru í embætti for­sæt­is­ráðherra í sam­starfi við Lýðræðis­lega sam­bands­flokk­inn sem er stærsti flokk­ur sam­bands­sinna á Norður-Írlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert