Farron segir af sér í Bretlandi

Tim Farron.
Tim Farron. AFP

Tim Farron, leiðtogi Frjáls­lynda demó­krata­flokks­ins í Bretlandi hef­ur til­kynnt um af­sögn sína. Hann seg­ir ástæðuna fyr­ir því vera umræðu um trú­ar­skoðanir hans í tengsl­um við rétt­indi sam­kyn­hneigðra í ný­af­staðinni kosn­inga­bar­áttu vegna bresku þing­kosn­ing­anna.

„Það er ómögu­legt fyr­ir mig að vera stjórn­mála­leiðtogi og aðhyll­ast um leið kristna trú, með því að halda fast í það sem kem­ur fram í Biblí­unni,“ sagði Farron.

Hann sagðist hafa verið á milli tveggja elda vegna stjórn­mála- og trú­ar­skoðana sinna eft­ir að að hann var spurður hvort hann væri sam­mála já­kvæðum viðhorf­um flokks síns til sam­kyn­hneigðra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert