Greiða milljarð punda til N-Íra

00:00
00:00

Norður-Írland mun fá einn millj­arð punda, sem svar­ar til 133 millj­arða króna, í viðbótar­fram­lag frá breska rík­inu á næstu tveim­ur árum. Þetta er hluti af sam­komu­lagi sem Th­eresa May, formaður Íhalds­flokks­ins hef­ur gert við Lýðræðis­lega sam­bands­flokk­inn, DUP, en flokk­ur sá býður ein­göngu fram á Norður-Írlandi. DUP ætl­ar að verja rík­is­stjórn May falli en ný rík­is­stjórn Bret­lands er minni­hluta­stjórn. 

Tvær vik­ur eru liðnar frá þing­kosn­ing­um í Bretlandi en þar fékk DUP tíu þing­menn kjörna sem næg­ir til þess að tryggja rík­is­stjórn­inni meiri­hluta á þingi.

Leiðtogi DUP, Arlene Foster, seg­ir sam­komu­lagið gott fyr­ir Norður-Írland og Bret­land sem heild. Meðal þess sem kem­ur fram í sam­komu­lag­inu er að í stað 500 millj­ón punda mun 1,5 millj­arður punda renna í upp­bygg­ingu innviða, heil­brigðismál og mennta­mál á Norður-Írlandi. 

Theresa May og Arlene Foster hittust á fundi í morgun …
Th­eresa May og Arlene Foster hitt­ust á fundi í morg­un þar sem farið var yfir samn­ing flokk­anna. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert