95 byggingar standast ekki kröfur

00:00
00:00

Snúa þarf við hverj­um steini í rann­sókn­inni á elds­voðanum í Gren­fell-turn­in­um. Þetta kem­ur fram í opnu bréfi til Th­ersesu May for­sæt­is­ráðherra. Bréfið er frá íbú­um fjöl­býl­is­húss­ins en 79 lét­ust í elds­voðanum. 95 bygg­ing­ar í 32 sveit­ar­fé­lög­um stand­ast ekki krörf­ur um bruna­varn­ir. Þetta kem­ur fram í frétt BBC.

Mann­virkja­stofn­un hef­ur sent op­in­bert er­indi til bygg­ing­ar­yf­ir­valda í Bretlandi um sam­setn­ingu ein­angr­un­ar­efn­is og klæðning­ar í Gren­fell-turni sem varð al­elda fyrr í mánuðinum. Þetta kem­ur fram í Morg­un­blaðinu í dag.

„Þegar þetta gerðist töluðum við sam­an, ég og Jón Viðar Matth­ías­son, slökkviliðsstjóri á höfuðborg­ar­svæðinu, og fljót­lega upp úr því fór Mann­virkja­stofn­un fram á það við bresk yf­ir­völd að við fengj­um upp­lýs­ing­ar um ná­kvæm­lega hvernig þessi upp­bygg­ing á ytra byrði bygg­ing­ar­inn­ar hefði verið,“ seg­ir Björn Karls­son, for­stjóri Mann­virkja­stofn­unn­ar.

Björn seg­ir Mann­virkja­stofn­un hafa fylgst vel með gangi mála í Bretlandi eft­ir brun­ann og seg­ir hann að ein­angr­un­ar­efnið bak við klæðning­una hafi átt stór­an þátt í hversu hratt eld­ur­inn breidd­ist út um turn­inn.

Aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn­inn Fiona McCormack, sem hef­ur yf­ir­um­sjón með rann­sókn á brun­an­um, seg­ir í sam­tali við The Guar­di­an að fyrstu rann­sókn­ir sýni að ein­angr­un­ar­efnið á bak við klæðning­una hafi verið eld­fim­ara en klæðning­in sjálf.

Gren­fell-turn­inn var klædd­ur með svo­kallaðri Reyno­bond-klæðningu sem er álp­lata með plast báðum meg­in og virk­ar eins og regn­hlíf á turn­inn. Ein­angr­un­ar­efnið und­ir klæðning­unni var Celotex RS5000, en 50 mm bil var á milli ein­angr­un­ar­inn­ar og klæðning­ar­inn­ar og er talið að loftið þar á milli hafi haft eins kon­ar skor­steinsáhrif og leitt eld upp all­an turn­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert