120 háhýsi standast ekki kröfur

AFP

Klæðning sem notuð er í 120 há­hýs­um í alls 37 sveit­ar­fé­lög­um í Englandi upp­fyll­ir ekki kröf­ur um eld­varn­ir. Th­eresa May, for­sæt­is­ráðherra Bret­lands, greindi þing­mönn­um neðri­deild­ar breska þings­ins frá þessu í dag en klæðning­in fell­ur 100% á eld­varn­ar­prófi sem gert var í kjöl­far brun­ans í Gren­fell-turni í London.

May hvatti staðbund­in yf­ir­völd og rekstr­araðila íbúðahús­næðis til að fram­kvæma próf til að tryggja að eld­varn­ir stand­ist kröf­ur. Talið er að minnst 79 hafi lát­ist í elds­voðanum í Gren­fell-turni þann 14. júní. Ýmsar spurn­ing­ar vöknuðu í kjöl­far elds­voðans sem varð til þess að ráðist hef­ur verið í um­fangs­mikl­ar at­hug­an­ir á eld­vörn­um um allt Bret­land.

Kveðst May munu út­nefna dóm­ara til að fara með málið vegna elds­voðans fljót­lega. Þá seg­ir hún 282 fast­eign­ir hafa verið út­vegaðar tíma­bundið fyr­ir íbúa Gren­fell-turns­ins, 132 fjöl­skyld­ur hafa fengið stöðu sína metna og 65 hef­ur verið boðin tíma­bund­in hús­næðisúr­ræði.

Rík­is­stjórn­in hef­ur varið tæp­um 1,25 millj­ón pund­um í val­kvæðar greiðslur og mun þar að auki leggja aðgerðahóp­um og góðgerðafé­lög­um til 1 millj­ón punda til viðbót­ar að sögn May. Þá hef­ur Jeremy Cor­byn, formaður Verka­manna­flokks­ins, seg­ir hörm­ung­arn­ar vegna elds­voðans „leiða í ljós skelfi­leg­ar af­leiðing­ar niður­skurðar.“

Gren­fell-turn­inn var klædd­ur með svo­kallaðri Reyno­bond-klæðningu sem er álp­lata með plast báðum meg­in og virk­ar eins og regn­hlíf á turn­inn. Ein­angr­un­ar­efnið und­ir klæðning­unni var Celotex RS5000, en 50 mm bil var á milli ein­angr­un­ar­inn­ar og klæðning­ar­inn­ar og er talið að loftið þar á milli hafi haft eins kon­ar skor­steinsáhrif og leitt eld upp all­an turn­inn.

Frétt BBC

Íbúar Grenfell-turnsins misstu allir húsnæði sitt í eldsvoðanum.
Íbúar Gren­fell-turns­ins misstu all­ir hús­næði sitt í elds­voðanum. AFP
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert