Endanleg tala látinna óljós til áramóta

Það mun taka einhverja mánuði til viðbótar að komast að …
Það mun taka einhverja mánuði til viðbótar að komast að því hversu margir nákvæmlega létu lífið í eldsvoðanum í Grenfell-turni. AFP

End­an­leg tala þeirra sem lét­ust í elds­voðanum í Gren­fell-turni verður ekki kunn fyrr en í fyrsta lagi und­ir lok þessa árs að sögn lög­reglu í Bretlandi. Talið er að um 80 manns hafi látið lífið en óvíst er hvort unnt verði að bera kennsl á þá alla.

Flest­ir þeirra sem eru látn­ir eru sagðir hafa orðið inn­lyksa í 23 af þeim 129 íbúðum sem voru í há­hýs­inu. Alls lagði elds­voðinn 151 heim­ili í rúst, flest þeirra voru í Gren­fell-turn­in­um sjálf­um en nokk­ur í nær­liggj­andi hús­um. BBC grein­ir frá.

Fiona McCormack, yf­ir­maður hjá lög­regl­unni í London, seg­ir ókleift að segja til um end­an­leg­an dauðatoll elds­voðans að svo stöddu, ekki fyrr en allri leit og rann­sókn­um er lokið. Það kunni að taka ein­hverja mánuði.

„Það sem ég get sagt er að við telj­um að um 80 manns séu annað hvort látn­ir eða er enn saknað og því miður verðum við að gera ráð fyr­ir að þeir séu látn­ir,“ seg­ir McCormack.

„Ég vil ekki að það séu ein­hver fal­in fórn­ar­lömb. Við vilj­um öðlast skiln­ing á raun­veru­leg­um fjölda lát­inna vegna þess­ara hörm­unga,“ bætti hún við. Lög­regla seg­ir ein­hverja íbúa hafa reynt að færa sig lengra upp bygg­ing­una í von um að flýja eld­inn og talið er að þeir ein­stak­ling­ar hafi safn­ast sam­an í eina íbúð.

Seg­ir McCormack að full­trú­ar lög­regl­unn­ar gætu þurft að búa fjöl­skyld­ur fórn­ar­lamba und­ir það að hugs­an­lega muni lík­ams­leif­ar ætt­ingja þeirra og vina aldrei finn­ast sök­um þess hve gríðarleg eyðilegg­ing­in var í brun­an­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert