Biðlar til Mannréttindadómstólsins

Anders Behring Breivik hefur breytt nafni sínu í Fjotolf Hansen. …
Anders Behring Breivik hefur breytt nafni sínu í Fjotolf Hansen. Hann hefur aldrei iðrast gjörða sinna. AFP

Fjölda­morðing­inn And­ers Behring Brei­vik, sem varð 77 að bana í Nor­egi árið 2011, hef­ur farið þess á leit við Mann­rétt­inda­dóm­stól Evr­ópu að hann úr­sk­urði um aðstæður sín­ar í fang­elsi, sem hann tel­ur „ómannúðleg­ar.“

Brei­vik, sem seg­ir ein­angr­un sína brjóta gegn mann­rétt­ind­um sín­um, hef­ur leitað allra leiða til að fá kröf­ur sín­ar í gegn í norska dóms­kerf­inu en hæstirétt­ur lands­ins neitaði í júní að taka mál hans fyr­ir.

Oy­stein Storrvik, lögmaður fjölda­morðingj­ans, hef­ur þess vegna skotið mál­inu til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins. Seg­ir hann norska ríkið hafa brotið gegn Mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu, sem bann­ar „ómannúðlega“ og „niður­lægj­andi“ meðferð og trygg­ir rétt­inn til einka­lífs og sam­skipta.

Spurn­ing­in sem dóm­stóll­inn hef­ur verið beðinn um að úr­sk­urða um snýr aðallega að ein­angr­un Brei­vik í fang­els­inu þar sem hann dvel­ur.

Norska ríkið hef­ur hafnað staðhæf­ing­um morðingj­ans og seg­ir hann hafa fengið „VIP-meðferð“. Hann búi í þrem­ur vel bún­um fanga­klef­um og hafi reglu­lega aðgang að starfs­mönn­um fang­els­is­ins og lög­manni sín­um.

Brei­vik, sem er 38 ára, hef­ur breytt nafni sínu í Fjotolf Han­sen. Hann afplán­ar 21 árs fang­els­is­dóm fyr­ir voðaverk­in í Osló og Útey en yf­ir­völd geta fram­lengt dóm­inn eins og þurfa þykir.

Fjölda­morðing­inn hef­ur aldrei iðrast gjörða sinna og sagðist m.a. hafa myrt fórn­ar­lömb sín vegna þess að þau aðhyllt­ust fjöl­menn­ing­ar­stefnu. Flest voru ung­menni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert