Sagt að nota ódýrari klæðningu

Verktökum var sagt að draga úr kostnaði með því að …
Verktökum var sagt að draga úr kostnaði með því að nota ódýrari klæðingu. AFP

Verk­tök­um sem end­ur­nýjuðu klæðningu á Gren­fell turn­in­um var sagt að draga úr kostnaði end­ur­bót­anna með því að nota ódýr­ari klæðingu en mælt hafði verið með. Það var um­sjón­ar­maður bygg­ing­ar­inn­ar sem gerði þessi kröfu. The Times greindi fyrst frá, en aðrir bresk­ir fjöl­miðlar hafa einnig tekið málið upp.

Um 80 manns lét­ust þegar turn­inn fuðraði upp í elds­voða um miðjan júní, en talið er klæðning­in hafi valdið því að eld­ur­inn breidd­ist jafn hratt og raun bar vitni. 24 hæða bygg­ing­in varð al­elda á mjög skömm­um tíma. en haft var eft­ir slökkviliðsmönn­um að slíkt ætti ekki að geta gerst.

Minningarveggur um fórnarlömb eldsvoðans.
Minn­ing­ar­vegg­ur um fórn­ar­lömb elds­voðans. AFP

Verk­taka­fyr­ir­tæk­inu Artelia, sem sá um að end­ur­nýja klæðing­una, mun hafa borist tölvu­póst­ur frá um­sjón­araðila bygg­ing­ar­inn­ar, sem hélt utan um all­an rekst­ur fyr­ir yf­ir­völd, þar sem fram kom að sýna þyrfti fram á „góða kostnaðaráætl­un“ fyr­ir hverf­is­ráðið. Meðal ann­ars var mælst til þess að notuð yrði ál­klæðning í stað sinkklæðning­ar, sem hef­ur meiri mót­stöðu gagn­vart eldi.

Þá hef­ur verið greint frá því að sýni sem tek­in hafa verið úr klæðning­um 149 há­hýsa í London, hafi fallið á eld­varn­ar­prófi.

Íbúar í Gren­fell turn­in­um hafa gagn­rýnt yf­ir­völd harðlega vegna elds­voðans og lé­legr­ar upp­lýs­inga­gjaf­ar í kjöl­far hans. Leiddi það meðal ann­ars til mót­mæla þar sem íbú­ar í hverf­inu réðust inn í ráðhúsið í Chel­sea og Kens­ingt­on. Vilja ein­hverj­ir jafn­vel meina að yf­ir­völd leyni heild­ar­fjölda lát­inna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert