Leitin geti tekið fjóra mánuði

AFP

Leit að fórn­ar­lömb­um elds­voðans í Gren­fell-turni í London í júní gæti tekið fjóra mánuði til viðbót­ar. Talið er að um 80 manns hafi látið lífið en óvíst er hvort unnt verði að bera kennsl á þá alla.

Sky News grein­ir frá þessu.

Tólf lög­reglu­menn sem sér­hæfa sig í því að bera kennsl á fólk eft­ir ham­far­ir vinna nú í bygg­ing­unni ásamt 24 leit­ar­sér­fræðing­um og sex forn­leifa­fræðing­um. Er þeim skipt í fjóra til sex hópa sem vinna þriggja tíma vakt­ir. 

Al­ista­ir Hutchins, varðstjóri hjá bresku lög­regl­unni, hef­ur beðið aðstand­end­ur að sýna þol­in­mæði.

Að því er fram kem­ur í frétt In­depend­ent bjuggu 350 manns í hús­inu en 14 voru ekki heima þegar eld­ur­inn kviknaði. Yfir 250 lifðu elds­voðann af.

Flest­ir þeirra sem eru látn­ir eru sagðir hafa orðið inn­lyksa í 23 af þeim 129 íbúðum sem voru í há­hýs­inu. Alls lagði elds­voðinn 151 heim­ili í rúst, flest þeirra voru í Gren­fell-turn­in­um sjálf­um en nokk­ur í nær­liggj­andi hús­um. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert