Dúkur mun hylja Grenfell-turninn

Vinnupallar verða reistir við bygginguna í næsta mánuði.
Vinnupallar verða reistir við bygginguna í næsta mánuði. AFP

Dúk­ur mun hylja Gren­fell-turn­inn í London, þar sem að minnsta kosti 80 manns létu lífið í júní, á meðan rann­sókn stend­ur yfir. Gert er ráð fyr­ir að hann verði sett­ur utan um vinnupalla á hús­næðinu í ág­úst. Frá þessu greindi Michael Lockwood bygg­inga­stjóri á fundi með al­menn­ingi í kirkju meþód­ista í Nott­ing Hill í gær. BBC grein­ir frá. 

Bú­ist er við að rann­sókn á hús­næðinu sjálfu muni standa fram í nóv­em­ber þar sem fjöl­marg­ir leit­ar­sér­fræðing­ar vinna meðal ann­ars að því að finna fórn­ar­lömb elds­voðans. Á meðal sér­fræðinga sem sinna þessi starfi eru nokkr­ir þeirra sem störfuðu á sín­um tíma við leit í rúst­um Tví­bura­t­urn­anna 11. sept­em­ber árið 2001.   

Gert er ráð fyr­ir að lög­reglu­rann­sókn muni standa að minnsta kosti fram til janú­ar á næsta ári. 

Þeir íbú­ar sem bjuggu í 33 íbúðum bygg­ing­ar­inn­ar geta átt von á að fá ein­hverj­ar eig­ur sín­ar aft­ur. Það verður þó ekki fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku. Sum­ar íbúðirn­ar eru strá­heil­ar en aðrar eru gjör­ónýt­ar. 

„Á næsta ári get­um við farið að huga að því að rífa bygg­ing­una niður, það er að segja ef það er krafa sam­fé­lags­ins. Vinnupall­arn­ir munu nýt­ast í það starf,“ sagði Lockwood og bætti við að all­ar ákv­arðanir sem snerta bygg­ing­una velta á vilja íbú­anna og sam­fé­lags­ins.    

Minn­ing­ar­at­höfn um fimm þeirra sem lét­ust í elds­voðanum verður hald­in á næst­unni í kirkju heil­agr­ar Helen í Norður-Kens­ingt­on. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert