Tveggja ára drengur meðal látnu

Grenfell-háhýsið í London brann til kaldra kola þann 14. júní.
Grenfell-háhýsið í London brann til kaldra kola þann 14. júní. AFP

Tveggja ára gam­all dreng­ur, Jerem­iah Deen, er meðal fórn­ar­lambanna sem lét­ust í brun­an­um Gren­fell-turni í London og bor­in hafa verið kennsl á. Jerem­iah litli bjó í íbúð á 14. hæð há­hýs­is­ins ásamt móður sinni Zainab Deenn sem einnig lést í elds­voðanum 14. júní síðastliðinn.

Dreng­ur­inn er 45. fórn­ar­lamb elds­voðans sem hef­ur verið nafn­greint en minnst 80 manns eru tald­ir hafa látið lífið.. Fjöl­skylda þeirra Jerem­iah og Zainab seg­ir þau munu „lifa í hjört­um sín­um að ei­lífu.“

Eitt fórn­ar­lamb fædd­ist and­vana

Þá hef­ur dreng­ur, sem fædd­ist and­vana á sjúkra­húsi þann 14. júní og var gefið nafnið Log­an Gomes, einnig verið skráður meðal fórn­ar­lamba elds­voðans í bók­um lög­reglu.

„Við vilj­um lýsa yfir ein­lægu þakk­læti okk­ar til allra aðstand­enda og vina fyr­ir bæn­ir þeirra, blóm og sam­hug á þess­um erfiðu tím­um,“ segja for­eldr­ar Zainab Deen í yf­ir­lýs­ingu sem þau sendu frá sér um dauðsfall dótt­ur sinn­ar og barna­barns.

„Jarðarför þeirra verður aug­lýst síðar þar sem nú er verið að skipu­leggja för mæðgin­anna til sinn­ar hinstu hvílu,“ seg­ir enn­frem­ur í til­kynn­ing­unni. „Þið voruð skamma stund í fangi okk­ar en munið lifa að ei­lífu í hjört­um okk­ar.“

Þá greindi lög­regl­an í London einnig frá því í gær að hin 12 ára gamla Jessica Ur­bano Ramirez og hin 35 ára gamla Nura Jemal hefðu verið meðal látnu.

Frétt BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert