Gera kvikmynd um atburðina í Útey

Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik.
Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik. AFP

Afþrey­ing­arris­inn Net­flix hef­ur tryggt sér rétt­inn til að gera kvik­mynd um fjölda­morðin í Útey 22. júlí 2011. Paul Greengrass leik­stýr­ir mynd­inni en meðal annarra mynda hans eru Bloo­dy Sunday og United 93. 

Fjölda­morðing­inn And­ers Behring Brei­vik varð 77 að bana í Ósló og Útey fyr­ir sex árum.

Greengrass til aðstoðar við mynd­ina verður norski rit­höf­und­ur­inn Åsne Seier­stad en hún skrifaði ræki­lega grein­ingu á And­ers Behring Brei­vik og ógn­ar­verk­um hans með bók­inni Einn af okk­ur. Bók­in kom út í fyrra.

Í bók­inni reyn­ir Seier­stad að svara því hver Brevik er, maður sem „átti erfitt með að fóta sig inn­an ramma norsks sam­fé­lags en endaði á því að ráðast á það.“

Und­ir­bún­ing­ur fyr­ir tök­ur er haf­inn en gert er ráð fyr­ir því að upp­tök­ur hefj­ist í haust. Ekki er ljóst hvenær mynd­in verður frum­sýnd.

„Bók Seier­stad hafði mik­il áhrif á mig,“ sagði Greengrass.

Frétt VG.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert