Þóttist vera fórnarlamb Grenfell-brunans

Grenfell-turninn varð alelda á stuttum tíma og talið er að …
Grenfell-turninn varð alelda á stuttum tíma og talið er að um 80 manns hafi látið lífið í brunanum. AFP

Svika­hrapp­ur hef­ur viður­kennt að hafa nýtt sér brun­ann í Gren­fell-turn­in­um til að svíkja sem sam­svar­ar rúm­um 1,7 millj­ón­um króna úr sjóðum fyr­ir fórn­ar­lömb. Hinn 52 ára Anh Nhu Nguyen laug til um að hafa misst eig­in­konu og son í brun­an­um og lék fórn­ar­lamb í tvær vik­ur í kjöl­far brun­ans sem varð á átt­unda tug íbúa að bana. BBC grein­ir frá.

Hann kvaðst hafa misst allt sem hann átti í brun­an­um og tók meðal ann­ars í hönd Karls Bretaprins þegar hann heim­sótti fórn­ar­lömb­in.

Upp um hann komst þegar hann gaf upp mis­mun­andi íbúðar­núm­er, en sum­ar íbúðanna voru ekki til og í öðrum höfðu al­vöru­fórn­ar­lömb brun­ans búið. Þá hafði hann þegar þegið fjár­muni frá góðgerðarsam­tök­um og bæj­ar­ráðum. Auk þess fékk hann gist­ingu á hót­eli, mat og raf­tæki.

Nguyen fædd­ist í Víet­nam en flutt­ist til Bret­lands á ní­unda ára­tug síðustu ald­ar og er bresk­ur rík­is­borg­ari. Hann hef­ur verið dæmd­ur sek­ur 28 sinn­um fyr­ir 56 lög­brot á rúm­um 30 árum, meðal ann­ars þjófnað, íkveikj­ur og al­var­leg­ar lík­ams­meiðing­ar.

Hann hef­ur játað sök í mál­inu en sýndi eng­in merki iðrun­ar þegar hann kvað upp yf­ir­lýs­ingu sína fyr­ir túlki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert