Hvarfið enn ráðgáta

Janne Jemtland býr í smábænum Brumunddal í Noregi. Hennar hefur …
Janne Jemtland býr í smábænum Brumunddal í Noregi. Hennar hefur verið saknað í ellefu sólarhringa.

Ell­efu sól­ar­hring­ar eru liðnir frá því að síðast spurðist til hinn­ar 36 ára gömlu Janne Jemt­land, tveggja barna móður í smá­bæn­um Brumund­dal í Nor­egi. Lög­regl­an er engu nær um hvarf henn­ar en tel­ur að eitt­hvað sak­næmt hafi átt sér stað. Helstu rök­in fyr­ir því er blóð sem fund­ist hef­ur á tveim­ur stöðum við veg­kant í bæn­um.

Lög­regl­an hélt blaðamanna­fund í gær þar sem hún sagði frá stöðu máls­ins. Í kjöl­farið bár­ust henni nokkr­ar ábend­ing­ar sem nú er verið að fylgja eft­ir. Mikið hef­ur snjóað á svæðinu síðustu daga og í morg­un hef­ur verið grafið í snjón­um á nokkr­um stöðum. 

Skemmti sér í jóla­boði

Jemt­land var í jóla­boði í sam­komu­húsi í heima­bæ sín­um að kvöldi 28. des­em­ber. Aðrir gest­ir í veisl­unni segja að hún hafi leikið á als oddi og virst hress og kát. Bróðir henn­ar seg­ist hafa fengið snapchat­skila­boð frá syst­ur sinni um kvöldið og á þeim hafi mátt sjá að hún skemmti sér hið besta. 

Hún yf­ir­gaf veisl­una í leigu­bíl ásamt eig­in­manni sín­um um klukk­an tvö aðfaranótt hins 29. des­em­ber. Eft­ir að heim var komið hvarf hún hins veg­ar út í nótt­ina og hef­ur lög­regl­an eng­ar skýr­ing­ar á því. Lög­regl­an seg­ist þess hins veg­ar full­viss að hjón­in hafi skilað sér heim. Ekki er ljóst hvort hún fór að heim­an fót­gang­andi og þá hvort hún var ein á ferð en kalt var í veðri þessa nótt. 

Hófu leit tveim­ur sól­ar­hring­um seinna

Hins veg­ar hef­ur komið fram að eig­inmaður henn­ar til­kynnti ekki hvarf henn­ar fyrr en 30. des­em­ber, um 30 klukku­stund­um eft­ir að hún hvarf. Það var svo ekki fyrr en enn ein­um sól­ar­hring síðar að lög­regl­an hóf leit að henni þar sem hún taldi málið ekki brýnt.

Við rann­sókn á síma­gögn­um hef­ur komið í ljós að merki frá síma Jemt­land er numið í fjar­skipta­m­astri í miðbæ Brumund­dal um klukk­an 5.50 að morgni föstu­dags­ins 29. des­em­ber. Mastrið er í um 11 kíló­metra fjar­lægð frá heim­ili henn­ar. Lög­regl­an hef­ur ekki gefið upp hvort hringt hafi verið í eða úr síma henn­ar á þess­um tíma­punkti. 

Helstu vís­bend­ing­ar sem fram hafa komið í mál­inu eru hins veg­ar blóðið. Fimmtu­dag­inn 4. janú­ar sá veg­far­andi blóð í veg­kanti skammt frá miðbæ Brumund­dal. Dag­inn eft­ir var staðfest að blóðið væri úr Jemt­land. 

Tveim­ur dög­um síðar fannst svo meira blóð en við ann­an veg í um kíló­metra fjar­lægð frá fyrri fund­arstað. Í ljós kom að það blóð var einnig úr Jemt­land. Staðirn­ir sem blóðið fannst á eru báðir í um 12 kíló­metra fjar­lægð frá heim­ili henn­ar.

Í gær­kvöldi fannst svo meira blóð en í ljós kom að það var úr dýri.

Lög­regl­an seg­ist ekki úti­loka að ekið hafi verið á hana.

Jemt­land á tvö börn, 10 og 13 ára göm­ul. Bróðir henn­ar, Terje Oph­eim, held­ur enn í von­ina um að hún finn­ist á lífi.

Um­fangs­mik­il leit stend­ur yfir en hvarf Janne Jemt­land er enn ráðgáta.

Grein­in er byggð á frétt­um NRK, VG, Dag­bla­det og Adressea­visen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert