Vonir norsku lögreglunnar um að finna hina 36 ára gömlu Janne Jemtland á lífi fara dvínandi eftir því sem fleiri dagar líða frá hvarfi hennar. Nú eru komnir tólf sólarhringar síðan hún yfirgaf heimili sitt í smábænum Brumunddal um nótt, eftir að hafa tekið leigubíl heim úr jólaveislu ásamt eiginmanni sínum. Síðan hefur ekkert til hennar spurst.
Lögreglunni í Brumunddal hafa borist yfir 200 ábendingar vegna hvarfs Jemtland en engin þeirra virðist hafa leitt lögreglu á spor hennar. Þá hefur leit sporhunda og með þyrlu úr lofti ekki borið árangur.
„Janne sást síðast í nágrenni við heimili sitt og þess vegna er eðlilegast að leita með þyrlu á því svæði,“ segir Terje Krogstad lögreglustjóri í samtali við norska fréttamiðilinn VG.
Fyrst eftir að eiginmaður Jemtland tilkynnti um hvarf hennar leituðu bæði lögregla og sjálfboðaliðar í nágrenni við heimili þeirra. „Það hefur verið leitað á öllu svæðinu, en spor og útlínur sjást betur úr lofti,“ segir Krogstad um það hvers vegna þyrla sé notuð við leitina.
Þyrlunni hefur meðal annars verið flogið í nágrenni við heimili Jemtland og yfir þá tvo staði þar sem blóð úr henni hefur fundist.
Hann segir lögreglu þó í raun engu nær um það hvað kom fyrir Jemtland eða hvar hún getur verið niður komin. Spurður hvort hann telji að hún hafi verið myrt segir Krogstad það eina kenningu sem unnið er með, en öllum möguleikum þó haldið opnum.
Spurður hvort það sé einhver von til að finna Jemtland á lífi segir hann: „Vonin fer dvínandi en hún er enn til staðar.“
Jemtland var í jólaboði í samkomuhúsi í heimabæ sínum að kvöldi 28. desember. Aðrir gestir í veislunni segja að hún hafi leikið á als oddi og virst hress og kát. Bróðir hennar segist hafa fengið Snapchat-skilaboð frá systur sinni um kvöldið og á þeim hafi mátt sjá að hún skemmti sér hið besta.
Hún yfirgaf veisluna í leigubíl ásamt eiginmanni sínum um klukkan tvö aðfaranótt 29. desember. Eftir að heim var komið hvarf hún hins vegar út í nóttina og hefur lögreglan engar skýringar á því. Lögreglan segist þess hins vegar fullviss að hjónin hafi skilað sér heim. Ekki er ljóst hvort hún fór að heiman fótgangandi og þá hvort hún var ein á ferð en kalt var í veðri þessa nótt.
Hins vegar hefur komið fram að eiginmaður hennar tilkynnti ekki hvarf hennar fyrr en 30. desember, um 30 klukkustundum eftir að hún hvarf. Það var svo ekki fyrr en enn einum sólarhring síðar að lögreglan hóf leit að henni þar sem hún taldi málið ekki brýnt.
Við rannsókn á símagögnum hefur komið í ljós að merki frá síma Jemtland er numið í fjarskiptamastri í miðbæ Brumunddal um klukkan 5.50 að morgni föstudagsins 29. desember. Mastrið er í um 11 kílómetra fjarlægð frá heimili hennar. Lögreglan hefur ekki gefið upp hvort hringt hafi verið í eða úr síma hennar á þessum tímapunkti.
Helstu vísbendingar sem fram hafa komið í málinu eru hins vegar blóðið. Fimmtudaginn 4. janúar sá vegfarandi blóð í vegkanti skammt frá miðbæ Brumunddal. Daginn eftir var staðfest að blóðið væri úr Jemtland.
Tveimur dögum síðar fannst svo meira blóð en við annan veg í um kílómetra fjarlægð frá fyrri fundarstað. Í ljós kom að það blóð var einnig úr Jemtland. Staðirnir sem blóðið fannst á eru báðir í um 12 kílómetra fjarlægð frá heimili hennar.