Líkfundur í Noregi

Janne Jemtland bjó í smábænum Brumunddal í Noregi. Hennar hefur …
Janne Jemtland bjó í smábænum Brumunddal í Noregi. Hennar hefur verið saknað í um tvær vikur.

Lög­regla í Brumund­dal í Nor­egi hef­ur fundið lík í tengsl­um við leit sína að hinni 36 ára gömlu Janne Jemt­land sem saknað hef­ur verið í rúm­lega tvær vik­ur. Fannst líkið á botni ár­inn­ar Glomma eft­ir margra klukku­stunda leit lög­regl­unn­ar. Í gær var eig­inmaður henn­ar hand­tek­inn í tengsl­um við málið og sagði lög­regl­an að allt benti til þess að hún hefði verið myrt.

Sam­kvæmt frétta­vef VG er haft eft­ir lög­reglu­stjór­an­um Frode Hjulstad að lang­an tíma hafi tekið að ná lík­inu upp úr ánni vegna mik­ils straums í henni. Þá sagði lög­regl­an í yf­ir­lýs­ingu að ekki væri vitað til þess að neinn ann­ar væri týnd­ur á svæðinu.

Sex kafar­ar frá slökkviliði í ná­grenn­inu aðstoðuðu lög­reglu við leit­ina. Lög­regl­an ætl­ar ekki að tjá sig að svo stöddu um fund­inn, en boðaður hef­ur verið blaðamanna­fund­ur á há­degi á morg­un að norsk­um tíma.

Janne, sem er tveggja barna móðir, virðist hafa farið brott af heim­ili sínu aðfaranótt 29. des­em­ber síðastliðins eft­ir að hún kom heim úr veislu ásamt eig­in­manni sín­um. Hann til­kynnti þó ekki hvarf henn­ar fyrr en tæp­um sól­ar­hring síðar. Þá leið sól­ar­hring­ur til viðbót­ar þar til lög­regla hóf form­lega leit.

Blóð hef­ur fund­ist úr Jemt­land á tveim­ur stöðum með eins kíló­metra milli­bili. Spor og blóð úr henni fannst í um 12 kíló­metra radíus frá heim­ili henn­ar.

Viðtæk leit hef­ur staðið yfir að henni og lög­regl­unni hafa borist yfir 200 ábend­ing­ar vegna hvarfs­ins. Björg­un­ar­sveit­ar­fólk, leit­ar­hund­ar og þyrl­ur ásamt lög­reglu hafa meðal ann­ars tekið þátt í leit­inni að henni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert