Telja sig vita hvernig Jemtland lést

Janne Jemtland fannst látin á botni árinnar Glomma í gær. …
Janne Jemtland fannst látin á botni árinnar Glomma í gær. Hennar hafði þá verið saknað í tvær vikur.

Norska lög­regl­an tel­ur sig nú vita hvernig hin 36 ára gamla Janne Jemt­land, sem leitað hafði verið í tvær vik­ur, lést. Lík Jemt­land fannst í gær á botni ár­inn­ar Glomma eft­ir margra klukku­stunda leit lög­reglu, en áður hafði eig­inmaður henn­ar verið hand­tek­inn í tengsl­um við málið. Sagði lög­regla þá allt benda til þess að Jemt­land hefði verið myrt.

Greindi lög­regl­an frá því á fundi með norsk­um fjöl­miðlum í dag að hún hafi nú ákveðna til­gátu um at­b­urðarás­ina og lát Jemt­land.

Yf­ir­heyrsl­um yfir eig­in­mann­in­um verður haldið áfram í dag, en hann var yf­ir­heyrður fram eft­ir kvöldi í gær. Áður hef­ur komið fram að hann hafi vísað lög­reglu á lík konu sinn­ar, en að hann neiti að hafa orðið henni að bana.

„Það hef­ur verið mik­ill fram­gang­ur í mál­inu síðustu daga,“ hef­ur norska rík­is­út­varpið NRK eft­ir André Lillehovde van der Eyd­en, lög­fræðingi lög­regl­unn­ar. Ekki verði þó greint frá dánar­or­sök Jemt­land fyrr en að lok­inni krufn­ingu, sem verði í fyrsta lagi á morg­un.  

Lög­regla ósk­ar enn eft­ir vís­bend­ing­um frá al­menn­ingi, sér­stak­lega þeim sem eitt­hvað kunna að hafa orðið var­ir við í ná­grenni ár­inn­ar.

Víðtæk leit hófst að Jemt­land um tveim­ur sól­ar­hring­um eft­ir að hún hvarf og höfðu lög­regl­u borist yfir 200 ábend­ing­ar vegna hvarfs­ins. Björg­un­ar­sveit­ar­fólk, leit­ar­hund­ar og þyrl­ur ásamt lög­reglu voru meðal þeirra sem tóku þátt í leit­inni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert