Rannsókn hætt á nauðgunum á börnum

AFP

Fransk­ur rann­sókn­ar­dóm­ari hef­ur lokið rann­sókn á ásök­un­um um að fransk­ir her­menn hafi nauðgað börn­um í Mið-Afr­íku­lýðveld­inu þegar þeir sinntu friðargæslu þar. Niðurstaða dóm­ar­ans er að eng­ar sann­an­ir séu fyr­ir því að þeir hafi beitt börn kyn­ferðis­legu of­beldi.

Að sögn dóm­ar­ans eru eng­ar sann­an­ir fyr­ir því að liðsmenn Operati­on Sang­ar­is, hóps sem var sett­ur sam­an til þess að sinna friðargæslu í land­inu, hafi beitt börn kyn­ferðis­legu of­beldi í búðum fyr­ir fólk sem hafði flúið of­beldið á ár­un­um 2013 og 2014.

Tekið er fram að ekki sé hægt að full­yrða að of­beldið hafi ekki átt sér stað. Afar mis­vís­andi upp­lýs­ing­ar hafi komið fram í máli barn­anna sem áttu hlut að máli og því al­gjör­lega ómögu­legt að sak­fella her­menn fyr­ir of­beldi gagn­vart börn­um. 

Málið kom fyrst fram í dags­ljósið þegar Guar­di­an birti frétt um meint of­beldi í apríl 2015 og setti þetta svart­an blett á franska her­inn. 

Í frétt Guar­di­an kom fram að sex börn á aldr­in­um níu til þrett­án ára hafi greint frá kyn­ferðis­legu of­beldi þegar þau bjuggu í flótta­manna­búðum við höfuðborg­ina, Bangui. Börn­in fengu greitt fyr­ir kyn­lífið með mat frá her­mönn­un­um. Frönsk yf­ir­völd sendu rann­sókn­ar­nefnd á staðinn, bæði 2015 og 2016, og yf­ir­heyrði sex her­menn í tengsl­um við málið. Þeir neituðu all­ir sök.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert