Jemtland var skotin til bana

Janne Jemtland bjó í smábænum Brumunddal í Noregi.
Janne Jemtland bjó í smábænum Brumunddal í Noregi.

Norska lög­regl­an hef­ur staðfest að Janne Jemt­land var skot­in til bana. Jemt­land hafði verið saknað í átján daga er lík henn­ar fannst í á í Brumund­dal. 

Eig­inmaður Jemt­land er í haldi lög­reglu grunaður um að hafa banað henni. Í frétt NRK um málið seg­ir að eig­inmaður­inn segi að um slys fyr­ir utan heim­ili þeirra hafi verið að ræða. Hann seg­ir að þau hjón­in hafi ekki rif­ist í jóla­boði sem þau sóttu fyrr um kvöldið.

Lög­regl­an hef­ur ekki fundið byss­una sem Jemt­land var skot­in með. Þá hef­ur sími Jemt­land ekki held­ur fund­ist en talið er að hann hafi verið eyðilagður. 

Í frétt norska rík­is­sjón­varps­ins um rann­sókn máls­ins er haft eft­ir lög­reglu að hún telji að blóði, sem fannst á tveim­ur stöðum í ná­grenni miðbæj­ar Brumund­dal, hafi verið komið þar fyr­ir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert