„Þetta var valdarán“

Mugabe er 94 ára gamall.
Mugabe er 94 ára gamall. AFP

Robert Muga­be, fyrr­ver­andi for­seti Simba­bve, seg­ist hafa sagt af sér sem for­seti í kjöl­far vald­aráns. Muga­be var for­seti lands­ins í 20 ár en hafði áður verið for­sæt­is­ráðherra í sjö ár, áður en Em­mer­son Mn­angagwa tók við embætti for­seta seint á síðasta ári.

„Þetta var vald­arán, þótt sum­ir vilji ekki kalla það réttu nafni,“ sagði Muga­be í sjón­varps­viðtali við suðurafríska frétta­stöð. 

Muga­be sagði af sér í nóv­em­ber á síðasta ári eft­ir mik­inn þrýst­ing frá hern­um, al­menn­ingi og eig­in stjórn­mála­flokki. Em­mer­son Mn­angagwa tók fljót­lega við völd­um og lofaði hann nýj­um tím­um í land­inu en flest­ir hinna 16 millj­óna íbúa þess eru fá­tæk­ir og at­vinnu­leysi er mikið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert