Ráðist á friðargæsluliða

Hermenn við eftirlit í Mið-Afríkulýðveldinu.
Hermenn við eftirlit í Mið-Afríkulýðveldinu. AFP

Friðargæsluliðar Sam­einuðu þjóðanna urðu fyr­ir árás í Mið-Afr­íku­lýðveld­inu í nótt. Árás­in var gerð eft­ir að friðargæsluliðarn­ir höfðu ásamt stjórn­ar­her lands­ins farið í aðgerðir til að upp­ræta vopnaða hópa í út­hverfi höfuðborg­ar­inn­ar Bangui. Að minnsta kosti tveir lét­ust í því áhlaupi.

Nokkr­um tím­um síðar var ráðist á friðargæsluliðanna í miðborg Bangui, skammt frá for­seta­höll­inni. Árás­in stóð í um hálf­tíma og var beint gegn friðargæsluliðunum að því er talsmaður friðargæsluliðsins seg­ir við AFP-frétta­stof­una. 

Enn er verið að kanna hver stóð að baki árás­inni. 

Árás­ar­menn­irn­ir komu á mótor­hjóli sem merkt var Sam­einuðu þjóðunum, að því er sjón­ar­vott­ar segja. Friðargæsluliðarn­ir, sem eru frá Egyptalandi, svöruðu fyr­ir sig með skot­hríð. Eng­ar frek­ari upp­lýs­ing­ar hafa borist um árás­ina. 

Stjórn­ar­her­inn í Mið-Afr­íku­lýðveld­inu hef­ur átt fullt í fangi með að halda friðinn eft­ir að blóðug borg­ara­styrj­öld braust út árið 2013. Í henni var leiðtoga lands­ins til fleiri ára,  Franco­is Bozize, steypt af stóli.

Frakk­ar tóku þátt í að brjóta upp­reisn­ina á bak aft­ur en Mið-Afr­íku­lýðveldið var áður ný­lenda þeirra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert