Hætta að taka land af hvítum bændum

Mnangagwa hristir spaðann á hvítum Simbabvemanni á fundinum í dag.
Mnangagwa hristir spaðann á hvítum Simbabvemanni á fundinum í dag. AFP

Em­mer­son Mn­angagwa for­seti Simba­bve kall­ar eft­ir því að svart­ir og hvít­ir íbú­ar rík­is­ins sam­ein­ist í aðdrag­anda for­seta­kosn­inga í land­inu. Hann hef­ur gefið út að hætt verði að jaka jarðir af hvít­um bænd­um í land­inu, en það var stefna sem for­veri hans í starfi, Robert Muga­be, studdi.

Und­ir stjórn Muga­be voru hundruðir hvítra bænda í Simba­bve svipt­ir lífsviður­væri sínu og landi, þar sem rík­is­stjórn­in sagðist vera að taka til baka jarðir sem hvít­ir aðkomu­menn hefðu tekið á ósann­gjarn­an hátt.

Mn­angagwa sagði hins veg­ar að þessi stefna til­heyrði nú fortíðinni og ekki ætti leng­ur að spá í því hvort bænd­ur sem eiga jarðir væru svart­ir eða hvít­ir.

„Það er glæp­sam­legt að tala um það,“ sagði Mn­angagwa á kosn­inga­fundi í Har­ere í dag. Hann sagði að svart­ir bænd­ur og hvít­ir bænd­ur væru all­ir simba­bvesk­ir bænd­ur og það væri það sem skipti máli. Rík­is­stjórn hans væri sama um húðlit fólks.

Forsetakosningarnar í landinu fara fram 30. júlí.
For­seta­kosn­ing­arn­ar í land­inu fara fram 30. júlí. AFP

Á fund­in­um í dag viður­kenndi for­set­inn einnig að stefna stjórn­valda um að taka jarðir af hvít­um bænd­um hefði mis­heppn­ast, en í frétt á vef BBC er hún sögð hafa stórskaðað land­búnað lands­ins.

Fisk­ar eft­ir at­kvæðum hvítra íbúa

Talið er að þessi orð for­set­ans séu til þess fall­in að minnka áhyggj­ur hvítra kjós­enda, nú í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna sem fram fara 30. júlí. Það verða fyrstu kosn­ing­arn­ar eft­ir að Robert Muga­be hrökklaðist úr embætti for­seta í nóv­em­ber síðastliðnum, eft­ir 37 ára valda­skeið.

Hvít­ir kjós­end­ur í Simba­bve hafa í gegn­um tíðina kosið stjórn­ar­and­stöðuflokka á borð við MDC (Mo­vement for Democratic Change) en ekki flokk for­set­ans, Zanu-PF, sem Muga­be til­heyrði einnig.

Mnangagwa lyftir fótbolta í óræðum tilgangi fyrir fundinn í dag.
Mn­angagwa lyft­ir fót­bolta í óræðum til­gangi fyr­ir fund­inn í dag. AFP

BBC seg­ir að 23 for­setafram­bjóðend­ur verði lík­lega á kjör­seðlin­um 30. júlí og að Mn­angagwa sé tal­inn sig­ur­strang­leg­ast­ur. Þó er bent á að hann eigi sér óvini, bæði fyr­ir að steypa fyrr­ver­andi læri­meist­ara sín­um, Muga­be, af for­seta­stóli og fyr­ir að hafa áður fram­fylgt stefnu hans.

Hvað ger­ir unga fólkið?

Nel­son Chamisa, formaður MDC-flokks­ins er tal­inn lík­leg­ast­ur til að ógna for­set­an­um. Hann er fer­tug­ur lögmaður og prest­ur og þykir vin­sæll, sér­stak­lega á meðal ungs fólks og at­vinnu­lausra.

At­kvæði ungs fólks eru sögð skipta miklu í kom­andi kosn­ing­um, en meira en helm­ing­ur íbúa í Simba­bve eru und­ir 25 ára gaml­ir og 43,5% skráðra kjós­enda eru und­ir 35 ára aldri.

Um­fjöll­un BBC sem vísað er til.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka