Fyrstu kosningarnar án Mugabe

Langar raðir hafa myndast fyrir utan kjörstaði í Simbabve, en …
Langar raðir hafa myndast fyrir utan kjörstaði í Simbabve, en búist er við góðri kjörsókn. AFP

Kosn­ing­ar fara fram í Simba­bve í dag, þær fyrstu frá því landið hlaut sjálf­stæði árið 1980 þar sem Robert Muga­be, fyrr­ver­andi for­seti lands­ins, er ekki í fram­boði. Muga­be var hrak­inn frá völd­um í fyrra eft­ir tæpa fjóra ára­tugi á valda­stóli.

Talið er lík­legt að slag­ur­inn um for­seta­embættið verði milli þeirra Em­mer­son Mn­angagwa, leiðtoga stjórn­ar­flokks­ins Zanu-PF, og Nel­son Chamisa, leiðtoga stjórn­ar­and­stöðunn­ar.

Skoðanakann­an­ir benda til þess að Mn­angagwa hafi naumt for­skot á Chamisa.

Zanu-PF var flokk­ur Muga­bes, sem hef­ur til­kynnt að hann muni ekki kjósa Mn­angagwa. Kallaði hann raun­ar eft­ir að flokk­ur­inn yrði kos­inn burt úr rík­is­stjórn, en þing- og sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar fara einnig fram í land­inu í dag.

„Ég vona að valið eða kosn­ing­arn­ar [...] muni ýta úr vegi stjórn hers­ins og koma aft­ur á fót stjórn­laga­legu rétt­mæti,“ sagði hinn 94 ára gamli Muga­be er hann kom fram op­in­ber­lega í gær, í fyrsta skipti frá því að hers­höfðingj­ar neyddu hann til að segja af sér í nóv­em­ber í fyrra.

Bú­ist er við góðri kjör­sókn og er kosn­ingaþátt­taka yngra fólks tal­in einkar mik­il­væg, en tæp­ur helm­ing­ur þeirra sem eru á kjör­skrá eru und­ir 35 ára aldri.

Hundruð alþjóðlegra eft­ir­lits­manna eru nú í Simba­bve til að fylgj­ast með fram­gangi kosn­ing­anna og til að tryggja að allt gangi vel fyr­ir sig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert