Segir engin dæmi um kosningasvik

Atkvæði talin á kjörstað í Mbare, úthverfi Harare sem er …
Atkvæði talin á kjörstað í Mbare, úthverfi Harare sem er höfuðborg Simbabve. AFP

Yfir­kjör­stjórn Simba­bve lýsti því í dag yfir að ekki hefðu verið nein dæmi um kosn­inga­svik í for­seta-, þing- og sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um sem fóru fram í land­inu í gær. Yfir­kjör­stjórn­in hef­ur sætt mik­illi gagn­rýni, en stjórn­ar­andstaðan lýsti því yfir strax í gær að gall­ar hefðu verið á kosn­inga­ferl­inu.

„Við erum þess að al­gjör­lega full­viss að ekk­ert var um svik [...] við í yfir­kjör­stjórn Simba­bve stel­um ekki vali [kjós­enda] á leiðtoga og við gröf­um ekki und­an vilja þeirra,“ hef­ur AFP-frétta­stof­an eft­ir Priscilla Chiguma, for­manni yfir­kjör­stjórn­ar.

Kjör­stjórn­in hef­ur verið sökuð um að eiga hlut að máli í fyrri kosn­ing­um, sem gall­ar hafa verið á.

Em­mer­son Mn­angagwa, leiðtogi stjórn­ar­flokks­ins Zanu-PF, og Nel­son Chamisa, leiðtogi stjórn­ar­and­stöðunn­ar, sem lík­leg­ast­ir eru tald­ir til að bít­ast um for­seta­embættið, eru að sögn BBC báðir sig­urviss­ir.

Taln­ing stend­ur nú yfir, en talið er að yfir 75% þeirra 5,6 millj­óna sem eru á kjör­skrá hafi mætt og greitt at­kvæði og að það geti tekið fimm daga að fá úr­slit kosn­ing­anna staðfest.

Mn­angagwa, sem er starf­andi for­seti, sagðist hafa fengið „ein­stak­lega já­kvæðar“ upp­lýs­ing­ar, á meðan Chamisa sagði flokk sinn vera að vinna „af­ger­andi sig­ur“.

Kosn­inga­eft­ir­lits­menn Evr­ópu­sam­bands­ins og Banda­ríkj­anna fengu að fylgj­ast með kosn­ing­un­um í gær og er það í fyrsta skipti í 17 ár sem það er leyft.

Elm­ar Brok, aðal­kosn­inga­eft­ir­litsmaður Evr­ópu­sam­bands­ins í Simba­bve, sagði við AFP-frétta­veit­una í gær­kvöldið að kosn­inga­eft­ir­lits­menn muni skoða ákveðna þætti í fram­kvæmd kosn­ing­anna sem ekki hafi verið með felldu. Ekki sé vitað hvort um mynstur at­b­urða hafi verið að ræða eða hvort skipu­lag á ákveðnum kjör­stöðum hafi bara ekki verið eins og best væri á kosið.

Heilt yfir hafi þátt­taka verið góð, sér­stak­lega á meðal ungs fólks og að kosn­ing­arn­ar hafi að mestu leyti farið friðsam­lega fram, sem sé já­kvætt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert