Átök milli hers og stjórnarandstæðinga í Simbabve

Mikil óánægja greip um sig meðal stuðningsmanna MDC þegar tilkynnt …
Mikil óánægja greip um sig meðal stuðningsmanna MDC þegar tilkynnt var að stjórnarflokkurinn hefði farið með sigur af hólmi í þingkosningunum. AFP

Að minnsta kosti einn er lát­inn eft­ir að til óeirða kom í höfuðborg Simba­bve eft­ir að töl­ur voru birt­ar í þing­kosn­ing­un­um í dag. BBC seg­ir her­inn hafa skotið á mann­fjölda í höfuðborg­inni Har­are eft­ir að stuðnings­menn stjórn­ar­and­stöðunn­ar gengu þar ber­serks­gang.

Mann­fjöldi hafði safn­ast sam­an í miðborg­inni og beðið þar frá því í morg­un, en þegar frétt­ir bár­ust af því að stjórn­ar­flokk­ur­inn ZANU-PF hefði farið með sig­ur af hólmi í þing­kosn­ing­un­um á mánu­dag, kom til óeirða.

BBC seg­ir mann­fjöld­ann hafa gengið ber­serks­gang á göt­um Har­are og að hóp­ur­inn hafi haldið í átt að gam­alli flokks­skrif­stofu ZANU-PF vopnaður prik­um og grjóti. Fólkið hrópaði „Við vilj­um Chamisa“, en Nel­son Chamisa er er fram­bjóðandi stjórn­ar­and­stöðuflokks­ins Lýðræðis­hreyf­ing­ar­inn­ar (MND). Sprautaði óeirðalög­regla vatni á mann­fjöld­ann og notaði tára­gas til að dreifa hópn­um.

Stjórn­ar­and­stöðuflokk­ur­inn MDC seg­ir að brögð hafi verið í tafli í kosn­ing­un­um, en yfir­kjör­stjórn lýsti því yfir í dag að ZANU-PF hefði fengið yf­ir­gnæf­andi meiri­hluta at­kvæða í þing­kosn­ing­un­um og hafi þegar tryggt sér yfir 150 þing­sæti af 210. MDC hafi tryggt sér um fjöru­tíu. 

Ekki ligg­ur enn fyr­ir hver fór með sig­ur af hólmi í for­seta­kosn­ing­un­um, sem fóru fram sam­hliða þing- og sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um.

Hafa eft­ir­lits­menn kosn­inga­eft­ir­lits Evr­ópu­sam­bands­ins lýst yfir áhyggj­um af því hve lang­an tíma taki að telja at­kvæði vegna for­seta­kosn­ing­anna.

Sett­ur for­seti, Em­mer­son Mn­angagwa, sem er leiðtogi ZANU-PF, hef­ur hvatt kjós­end­ur til að sýna þol­in­mæði.

Kosn­ing­arn­ar á mánu­dag eru þær fyrstu sem fram fara í land­inu eft­ir að Robert Muga­be, for­seti til 37 ára, lét af völd­um. Í tíð Muga­bes voru ásak­an­ir um kosn­inga­s­vindl tíðar og oft brut­ust út átök í tengsl­um við þær. Nú­ver­andi for­seti, Em­mer­son Mn­angagwa, og for­setafram­bjóðandi ZANU-PF, hef­ur heitið því að upp­ræta spill­ingu í land­inu og bauð því eft­ir­lit­steymi frá ESB að fylgj­ast með gangi kosn­ing­anna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert