Stálu ferðatösku með fé Mugabes

Robert Mugabe ávarpar hér fjölmiðla er hann var enn forseti.
Robert Mugabe ávarpar hér fjölmiðla er hann var enn forseti. AFP

Þrír komu fyr­ir rétt í Simba­bve í dag ákærðir fyr­ir að hafa stolið ferðatösku sem inni­hélt 150.000 doll­ara og til­heyrði Robert Muga­be, fyrr­ver­andi for­seta lands­ins.

BBC seg­ir hina meintu þjófa þegar hafa eytt fénu í bíla, hús og bú­fénað.

Einn ætt­ingja for­set­ans, Const­antia Muga­be, er í hópi hinna ákærðu að sögn rík­is­fjöl­miðils Simba­bve. Er hún sögð hafa haft lykla að sveita­heim­ili Muga­bes í Zvimba, sem er í ná­grenni höfuðborg­ar­inn­ar Har­are, og á að hafa veitt hinum aðgang að hús­inu.

Hinir þjóf­arn­ir tveir störfuðu við ræst­ing­ar er stuld­ur­inn átti sér stað, en það var ein­hvern tím­ann á tíma­bil­inu frá des­em­ber­byrj­un þar til nú í janú­ar.

„Johanne Map­urisa keypti Toyota Camry [...] og hús fyr­ir 20.000 doll­ara eft­ir at­vikið,“ sagði rík­is­sak­sókn­ar­inn Teverais­he Zinyemba við dóm­stól­inn í Chinhoyi.

„Saymore Nhetekwa keypti Honda-bíl og bú­fénað, meðal ann­ars svín og naut­gripi fyr­ir ótil­greinda upp­hæð.“

Muga­be, sem er 94 ára, var neydd­ur til að segja af sér embætti í lok árs 2017, en þá hafði hann verið við völd í 37 ár. Hann var sakaður um að lifa munaðarlífi er hann sat á for­seta­stóli, þrátt fyr­ir mikla efn­hagskreppu í land­inu.

Ekki er ljóst hvort Muga­be var heima við er þjófnaður­inn átti sér stað, en hann hef­ur dvalið lang­dvöl­um í Singa­pore í lækn­inga­skyni eft­ir að hann hætti sem for­seti.

AFP-frétta­stof­an seg­ir þjóf­ana þrjá nú hafa verið látna lausa gegn greiðslu trygg­ing­ar, en sá fjórði er enn sagður ganga laus.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert