„Munum krefjast dauðarefsingar“

00:00
00:00

Embætti sak­sókn­ara í El Paso hyggst fara fram á dauðarefs­ingu yfir mann­in­um sem myrti 20 og særði 26 til viðbót­ar, er hann hóf skotárás í versl­un Walmart í gær.

Banda­rísk­ir fjöl­miðlar hafa greint frá því að árás­armaður­inn heiti Pat­rick Crusius og sé 21 árs. Hann er sagður hafa birt stefnu­yf­ir­lýs­ingu, mani­festó, þar sem hann fjallaði meðal ann­ars um það sem hann kallaði „inn­rás“ fólks frá rómönsku Am­er­íku í Texas-ríki.

„Ég get sagt ykk­ur það al­veg strax að ákæra rík­is­ins hljóðar upp á morðákæru þannig að hægt er að fara fram á dauðarefs­ingu yfir hon­um,“ sagði rík­is­sak­sókn­ar­inn Jaime Esp­arza við frétta­menn. „Við mun­um krefjast dauðarefs­ing­ar.“

Einn mann­skæðasti dag­ur í sögu Texas

Greg Allen, lög­reglu­stjóri í El Paso, sem er á landa­mær­um Mexí­kó og Banda­ríkj­anna, sagði á blaðamanna­fundi í gær­kvöldi að lög­regla væri að skoða þessa stefnu­yf­ir­lýs­ingu manns­ins og sagði að hún gæfi til kynna að setja mætti gjörðir hans í sam­hengi við hat­urs­glæp.

„Við mun­um sækja málið af hörku, bæði sem morðmál og sem hat­urs­glæp­ur, sem er ná­kvæm­lega það sem þetta virðist vera,“ hef­ur BBC eft­ir Greg Ab­bott rík­is­stjóra Texas á fundi með frétta­mönn­um.

Sagði Ab­bot gær­dag­inn hafa vera einn „mann­skæðasta dag í sögu“ Texas, en árás­in er sú átt­unda mann­skæðasta sem orðið hef­ur í Banda­ríkj­un­um í seinni tíð.

 Í frétt AFP um málið er fjallað um það sem stend­ur í stefnu­yf­ir­lýs­ingu árás­ar­manns­ins, sem hann birti að sögn CNN á vefsíðunni 8ch­an.

Sagði hann þar árás­ina vera „svar við inn­rás fólks af rómönsk­um upp­runa inn í Texas“ og vísaði með ein­hverj­um hætti til skotárás­anna í Christchurch á Nýja-Sjálandi, þar sem hvít­ur maður drap 51 múslima í mars á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert