Bendir ekkert til kynþáttahaturs

Blómum, myndum og kertum hefur verið komið fyrir við árásarstaðinn …
Blómum, myndum og kertum hefur verið komið fyrir við árásarstaðinn í minningu þeirra níu sem létust í skotárásinni í Dayton. AFP

Lög­regla í Dayt­on í Ohio seg­ir ekk­ert benda til þess að kynþátta­hat­ur hafi verið ástæða skotárás­ar sem gerð var utan við bar í borg­inni aðfaranótt sunnu­dags og kostaði níu manns lífið.

Banda­rísk­ir fjöl­miðlar hafa sagt árás­ar­mann­inn hafa verið  24 ára mann að nafni Conn­or Betts sem hóf að skjóta með alsjálf­virk­um riffli utan við bar í Or­egon-hverfi borg­ar­inn­arLög­reglu­menn sem voru í hefðbund­inni eft­ir­lits­ferð um hverfið voru komn­ir á staðinn inn­an við mín­útu eft­ir að fyrsta skotið reið af og felldu árás­ar­mann­inn.

„Byggt á þeim upp­lýs­ing­um sem við höf­um núna, þá sjá­um við eng­ar vís­bend­ing­ar um að til­efnið teng­ist kynþátta­hyggju,“ sagði Rich­ard Biehl lög­reglu­stjóri Dayt­on.

Fjölmargir komu saman og tóku þátt í minningarathöfn um þá …
Fjöl­marg­ir komu sam­an og tóku þátt í minn­ing­ar­at­höfn um þá sem lét­ust í skotárás­inni. AFP

Sex af þeim níu sem lét­ust í árás­inni voru svart­ir og sagði Biehl því engu að síður of snemmt að úti­loka að kynátta­hat­ur ætti hlut að máli. „Við erum ekki búin að fara yfir öll sönn­un­ar­gögn­in og þar til við höf­um gert það get­um við ekki úti­lokað það,“ sagði hann.

Syst­ir árás­ar­manns­ins var meðal þeirra sem lét­ust í árás­inni.

Lög­reglu­stjór­inn sagði skot­hylki sem fund­ust í fór­um árás­ar­manns­ins gefa til kynna að hann hefði geta skotið allt að 250 skot­um, hefði hann ekki verið drep­inn af lög­reglu­mönn­um inn­an við mín­útu eft­ir að hann hóf árás­ina.

Sagði Biehl skot­vopn af þess­ari gráðu í hönd­um al­menns borg­ara vera „í grund­vall­ar­atriðum vanda­mál“.

Meðal þeirra tæp­lega 30 sem særðust í árás­inni fengu 14 í sig skot, m.a. vin­ur syst­ur­inn­ar. Sagði Biehl hann vera aðstoða lög­reglu við rann­sókn­ina.

Árás­armaður­inn hafði komið með syst­ur sinni og vini henn­ar í Or­egon, sem er skemmt­ana­hverfi borg­ar­inn­ar, en síðan sagt skilið við þau.

Árás­in í Dayt­on átti sér stað 13 tím­um eft­ir að ann­ar árás­armaður hóf skot­hríð í Walmart versl­un í El Paso sem nú hef­ur kostað 22 lífið. Hann hafði áður birt stefnu­yf­ir­lýs­ingu, mani­festó, þar sem hann fjallaði meðal ann­ars um það sem hann kallaði „inn­rás“ fólks frá rómönsku Am­er­íku í Texas-ríki. Lög­regla í El Paso seg­ir um hryðju­verk að ræða og hef­ur sá árás­armaður verið ákærður fyr­ir morð og kann að eiga dauðarefs­ingu yfir höfði sér.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert