Létu lífið við að vernda son sinn

Jordan og Andre Anchondo voru að kaupa skólavörur þegar þau …
Jordan og Andre Anchondo voru að kaupa skólavörur þegar þau urðu á vegi árásarmannsins. Ljósmynd/Facebook

Þegar bys­sumaður hóf skotárás á viðskipta­vini Walmart-versl­un­ar­inn­ar í El Paso í Texas á laug­ar­dag fórnaði ungt par lífi sínu til að vernda tveggja mánaða son sinn. Þau Jor­d­an og Andre Anchondo höfðu ný­lokið við að fagna eins árs brúðkaup­saf­mæli sínu og voru að kaupa skóla­vör­ur, þegar þau urðu á vegi árás­ar­manns­ins.

Að sögn lækna er bein­brot litla drengs­ins lík­lega til komið af því að Jor­d­an hafi reynt að vernda hann fyr­ir skotárás­inni. Andre faðir hans varð svo fyr­ir ban­vænu skoti er hann reyndi að verja þau Jor­d­an.

„Barnið er á lífi vegna hetju­dáðar móður þess og föður,“ hef­ur Guar­di­an eft­ir El­iza­beth Terry, frænku Jor­d­an. „Þau voru greini­lega frá­bær­ir for­eldr­ar og reiðubú­in að fórna sér í allri merk­ingu orðsins.“

Anchondos-hjón­in voru tvö af þeim 31 sem fórst í tveim­ur skotárás­um í Texas og Ohio um helg­ina.

Biðu í bíln­um á meðan hún var drep­in

BBC grein­ir frá því sem vitað er um hin fórn­ar­lömb­in 29.

Angie Englis­bee er tal­in vera elst fórn­ar­lambanna. Hún var 86 ára og hafði ný­lokið við að ræða við son sinn í sím­ann á meðan hún beið í röðinni við kass­ann í Walmart. Nokkr­um mín­út­um síðar gekk árás­armaður­inn þar inn.

Javier Rodrigu­ez var 15 ára. Fjöl­skylda hans dreifði mynd­um af hon­um á sam­fé­lags­miðlum á laug­ar­dag í von um að finna hann, en í gær var ótti þeirra staðfest­ur. El­vira frænka hans birti á Face­book færslu þar sem „mörg tár“ voru sögð hafa fallið vegna dauða Javiers.

Fjöl­skylda þeirra Leo Campos og Mari­bel Hern­and­ez staðfesti við CBS4-sjón­varps­stöðina að þau væru í hópi hinna látnu. Seg­ir sjón­varps­stöðin fjöl­skyld­una fyrst hafa vitað að eitt­hvað væri að þegar hundasnyrt­ir­inn hringdi og lét vita að þau hefðu ekki sótt hund­inn sinn í snyrt­ingu.

Elsa Mendoza de la Mora var sér­kenn­ari sem bjó rétt hand­an landa­mær­anna í Ciu­dad Ju­árez í Mexí­kó. Hún ferðaðist yfir til Banda­ríkj­anna flest­ar helg­ar til að heim­sækja vini og ætt­ingja. Eig­inmaður henn­ar og son­ur biðu úti í bíl á meðan hún var drep­in.

Arturo Bena­vi­des var 67 ára rútu­bíl­stjóri og lýst­ir frænka hans Jacklin Luna hon­um sem „vilja­sterk­um, gjaf­mild­um og ein­stök­um manni“. Hann var stadd­ur í Walmart með konu sinni sem náði að flýja. Luna aug­lýsti eft­ir frænda sín­um á Face­book áður en lát hans var staðfest.

María Eu­genia Leg­ar­reta Rot­he var frá Chi­hua­hua í Mexí­kó og hafði komið til El Paso til að sækja dótt­ur sína á flug­völl­inn. Hún hafði komið við í Walmart til að kaupa nokkra hluti fyr­ir heim­ilið.

Gloria Irma Márqu­ez frá Ciu­dad Ju­árez var stödd í El Paso með ætt­ingja er hún var drep­in.

Einnig lét­ust í skotárás­inni í El Paso þau Iván Fili­berto Manzano, Jor­ge Cal­villo García, Sara Esther Regala­do og Ad­ol­fo Cerros Her­nández sem öll voru frá Mexí­kó.

Fórn­ar­lömb­in í Dayt­on

Níu létu lífið í Dayt­on þegar árás­armaður beindi alsjálf­virk­um riffli að fólki utan við bar í Or­egon-skemmti­staðahverf­inu.

Lois Og­les­by 27 ára var meðal þeirra sem þar lét­ust. Hún var tveggja barna móðir sem hafði ný­lega snúið aft­ur til vinnu að loknu fæðing­ar­or­lofi og starfaði á leik­skóla í Dayt­on.

„Hún var ynd­is­leg móðir, dá­sam­leg mann­eskja,“ hef­ur dag­blaðið Dayt­on Daily News eft­ir Derasha Mer­ret, vin­konu Lou­is. „Ég er búin að gráta svo mikið að ég get hrein­lega ekki grátið meira.“

Meg­an Betts 22 ára er tal­in hafa verið eitt af fyrstu fórn­ar­lömb­um árás­ar­manns­ins, sem var Conn­or bróðir henn­ar. Hún var að nema um­hverf­is­fræði.

Log­an Turner, 30 ára, hafði ný­lega fengið vinnu sem vélamaður í heima­bæ sín­um Spring­boro. „Hann var gjaf­mild­ur og elsku­leg­ur,“ sagði móðir hans Danita Turner í sam­tali við Dayt­on Daily News. „Það þótti öll­um vænt um hann. Hann var létt­lynd­ur strák­ur.“

Nicholas Cu­mer, 25 ára, var frá Pitts­burg. Hann var að ljúka lær­lings­stöðu við umönn­un krabba­meins­sjúkra í Dayt­on þegar hann var drep­inn og hafði ný­lega verið boðið fullt starf hjá krabba­meins­sam­tök­um. Sam­tök­in Maple Tree Cancer Alli­ance lofuðu Nicholas í færslu á Face­book fyr­ir ljúf­mennsku og hve vel hann sinnti sjúk­ling­um sín­um.  

Thom­as McNichols, 25 ára, var fjög­urra barna faðir. Hann hafði farið út á lífið með frænda sín­um eft­ir vinnu þegar hann varð á vegi árás­ar­manns­ins. „Það þótti öll­um vænt um hann. Hann var eins og stór krakki,“ sagði frænka hans Donna John­son í sam­tali við WHIOTV-sjón­varps­stöðina.

Aðrir sem lét­ust í árás­inni voru Sa­eed Sa­leh, 38 ára, Derrick Fudge, 57 ára, Be­atrice War­ren Curt­is, 36 ára, og Monica Brickhou­se, 39 ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert