Blóm og kransar frá Asíu til El Paso

Um 700 manns mættu í minningarathöfn um Margie Reckard í …
Um 700 manns mættu í minningarathöfn um Margie Reckard í gær, en hún var myrt í hryðjuverkaárásinni í El Paso 3. ágúst. AFP

Marg­menni var í gær við minn­ing­ar­at­höfn eins fórn­ar­lambs árás­ar­inn­ar í El Paso, hinn­ar 63 ára gömlu Margie Reckard. Þó þekkti nær eng­inn þeirra sem mættu kon­una nema eig­inmaður henn­ar.

Eft­ir að Reckard lést í hryðju­verka­árás­inni 3. ág­úst síðastliðinn, sá eig­inmaður henn­ar, Ant­onio Basco, fram á að hann þyrfti að grafa hana einn, þar sem hann sjálf­ur á enga fjöl­skyldu og þau tvö virðast ekki hafa átt marga að, al­mennt.

Hann bað því út­far­ar­stof­una um að aug­lýsa jarðarför­ina op­in­ber­lega.

Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Yfir 700 manns mættu að minn­ing­ar­at­höfn­inni. 10.000 manns sendu samúðar­skeyti og yfir 900 blóma­skreyt­ing­ar bár­ust, sum­ar alla leið frá Asíu til Texas, sam­kvæmt um­fjöll­un New York Times.

„Þetta er ótrú­legt,“ sagði Basco, sem grét er hann tók á móti samúðarkveðjum frá fjölda manns sem hann kunni eng­in deili á. Eig­in­kona hans verður bor­in til graf­ar í dag.

Ekkillinn Antonio Basco faðmar að sér bláókunnugan mann í minningarathöfn …
Ekk­ill­inn Ant­onio Basco faðmar að sér bláókunn­ug­an mann í minn­ing­ar­at­höfn um eig­in­konu hans. AFP
Röð var út á götu fyrir utan La Paz-trúarmiðstöðina í …
Röð var út á götu fyr­ir utan La Paz-trú­armiðstöðina í El Paso. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert