Walmart hættir sölu skotfæra

Walmart er stærsta verslanakeðja Bandaríkjanna. Þar verður ekki lengur hægt …
Walmart er stærsta verslanakeðja Bandaríkjanna. Þar verður ekki lengur hægt að kaupa skotfæri. AFP

Walmart-versl­ana­keðjan hef­ur til­kynnt að hætt verði að selja skot­færi fyr­ir skamm­byss­ur, hagla­byss­ur og riffla. Einnig verði hætt að selja skamm­byss­ur í versl­un­um fyr­ir­tæk­is­ins í Alaska, sem eru einu Walmart-versl­an­irn­ar sem enn selja skamm­byss­ur.

CNN grein­ir frá og seg­ir viðskipta­vini Walmart einnig beðna að taka ekki með sér vopn inn í versl­an­irn­ar.

Mánuður er nú frá því að 20 manns lét­ust í skotárás í versl­un Walmart í El Paso í Texas og hafa stjórn­end­ur versl­ana­keðjunn­ar verið meðal þeirra sem þrýst hafa á banda­rísk­an þing­heim um herta byssu­lög­gjöf.

Walmart er stærsta versl­ana­keðja Banda­ríkj­anna. CNN seg­ir Walmart hafa til­kynnt að hætt verði sölu á skot­fær­um í öll­um 4.700 versl­un­um fyr­ir­tæk­is­ins og að viðskipta­vin­ir verði beðnir að koma ekki með vopn sín inn í versl­an­irn­ar í þeim ríkj­um sem heim­ili slík­an vopna­b­urð.

Í minn­is­blaði sem starfs­menn Walmart fengu sent i dag seg­ir for­stjór­inn Doug McMillon skotárás­ina í El Paso ástæðu þess­ara breyt­inga og það séu raun­ar líka ný­leg­ar skotárás­ir í Dayt­on Ohio, Midland og Odessa í Texas.

„Við flókn­ar aðstæður sem skort­ir ein­falda lausn erum við að reyna að taka upp­byggi­leg skref til að draga úr hætt­unni á að slíkt muni ger­ast aft­ur,“ sagði McMillon. „Nú­ver­andi staða er óviðun­andi.“

Walmart greindi ný­lega frá því að um 2% vopna­sölu í Banda­ríkj­un­um færu í gegn­um fyr­ir­tækið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert