Aðskilnaðarsinnar hafa boðað til allsherjarverkfalls í Katalóníu í dag. Tugþúsundir hafa safnast saman í miðborg Barcelona öll kvöld vikunnar til að mótmæla fangelsisdómum leiðtoga aðskilnaðarsinna sem vilja sjálfstæði Katalóníuhéraðs.
Hæstiréttur Spánar dæmdi á mánudag níu leiðtoga sjálfstæðissinna í Katalóníu til áralangrar fangelsisvistar. Þyngsti dómurinn hljóðar upp á 13 ár en sá sem styst þarf að sitja inni verður þar þó í níu ár.
Í mótmælunum í gærkvöld stöðvuðu mótmælendur umferð á landamærum Spánar og Frakklands. Mótmælendur kveiktu einnig í bílum og köstuðu bensínsprengjum og flugeldum að óeirðalögreglu. Þá safnaðist fjöldi háskólanema saman og mótmælti sömuleiðis og kyrjuðu „frelsið pólitísku fangana“.
Búist er við að hundruð þúsunda taki þátt í allsherjarverkfallinu og fjöldamótmælunum í dag.