Réttarhöld vegna MH17 hafin í Hollandi

Réttarhöld yfir fjórmenningum sem ákærðir eru fyrir að hafa skotið …
Réttarhöld yfir fjórmenningum sem ákærðir eru fyrir að hafa skotið niður farþegaþotu Malaysia Airlines, flug MH17, sem var á leið frá Amsterdam til Kuala Lumpur í júlí 2014, hófust í Amsterdam í morgun. AFP

Rétt­ar­höld yfir fjór­menn­ing­um sem ákærðir eru fyr­ir að hafa skotið niður farþegaþotu Malaysia Air­lines, flug MH17, sem var á leið frá Amster­dam til Kuala Lump­ur í júlí 2014, hóf­ust í Amster­dam í morg­un. 

298 manns af tíu þjóðern­um létu lífið þegar vél­inni var grandað. Tveir þriðju hinna látnu voru hol­lensk.  

Alþjóðlegt teymi rann­sak­enda sem unnið hef­ur að rann­sókn á árás­inni á flug­vél­ina fór fram á það síðasta sum­ar að menn­irn­ir fjór­ir yrðu ákærðir. Rann­sókn­ar­nefnd­in, sem leidd er af Hol­lend­ing­um, hef­ur kom­ist að þeirri niður­stöðu að Rúss­arn­ir Igor Girk­in, Ser­gey Dubin­skíj og Oleg Pu­latov auk Úkraínu­manns­ins Leonid Kharchen­ko, beri ábyrgð á því að BUK Tel­ar-flug­skeytið sem grandaði flug­vél­inni hafi verið flutt yfir landa­mæri Rúss­lands til Úkraínu. Rúss­nesk yf­ir­völd hafa neitað því frá upp­hafi að vera viðriðin árás­ina. 

Dóm­ari við dóm­stól­inn sagði málið „grimmd­ar­lega hörm­ung“ við upp­haf rétt­ar­hald­anna í morg­un. Rík­in hafa neitað að fram­selja hina ákærðu og því verða þeir ekki viðstadd­ir rétt­ar­höld­in. Lögmaður eins Rúss­ans er viðstadd­ur rétt­ar­höld­in og hef­ur ákæru­valdið sagst vera til­búið að taka við vitn­is­b­urði í formi mynd­skeiða.

Frétt BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert