Árásarmaðurinn játar ódæðið

Einn þeirra sem lifði árásina í Christchurch af í fyrra …
Einn þeirra sem lifði árásina í Christchurch af í fyrra sést hér á leið í mosku í borginni. AFP

Maður­inn sem er sakaður um að hafa skotið 51 til bana í bæna­hús­um í Christchurch í Nýja-Sjálandi í mars í fyrra hef­ur játað sekt sína.

Yf­ir­lýs­ing manns­ins kem­ur á óvart en áður hafði hann lýst yfir sak­leysi sínu.

Maður­inn skaut á múslima er þeir fóru með bæn­ir í mosk­unni Al Noor og í mosk­unni Linwood. Sýndi hann beint frá ódæðinu á sam­fé­lags­miðlum.

Í yf­ir­lýs­ingu lög­reglu kem­ur fram að maður­inn hafi játað 51 morð, 40 morðtil­raun­ir og hryðju­verk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert