Verður tekin af lífi 12. janúar

Lisa Montgomery.
Lisa Montgomery. AFP

Banda­rísk­ur áfrýj­un­ar­dóm­stóll hef­ur aflétt frest­un á af­töku Lisu Mont­gomery, sem kyrkti þungaða konu, risti hana á kvið og tók úr henni ófætt barnið með eld­hús­hníf. Mont­gomery verður að óbreyttu fyrsta kon­an sem tek­in verður af lífi af al­rík­is­yf­ir­völd­um í nærri 70 ár. 

Til stóð að taka Mont­gomery af lífi með ban­vænni sprautu í al­rík­is­fang­els­inu í Ter­re Haute, Indi­ana, í síðasta mánuði, en al­rík­is­dóm­ari frestaði af­tök­unni eft­ir að lög­menn henn­ar sýkt­ust af kór­ónu­veirunni. 

Banda­ríska dóms­málaráðuneytið ákvað í kjöl­farið að af­tak­an færi fram 12. janú­ar. BBC grein­ir frá því að lög­menn Mont­gomery munu fara þess á leit að niðurstaða áfrýj­un­ar­dóm­stóls­ins verði end­ur­skoðuð. 

Síðast var kona tek­in af lífi af al­rík­is­yf­ir­völd­um Banda­ríkj­anna árið 1953, þegar Bonnie Hea­dy var tek­in af lífi í gas­klefa. Af­tök­ur al­rík­is­yf­ir­valda höfðu ekki farið fram í 17 ár þegar Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti ákvað á síðasta ári að hefja þær að nýju. 

Bobbie Jo Stinn­ett var 23 ára göm­ul er Mont­gomery drap hana í des­em­ber 2004 en þær þekkt­ust ekki. Yfir eitt þúsund lög­menn hafa biðlað til al­rík­is­ins um að þyrma lífi Mont­gomery, sem er mjög veik á geði eft­ir hrotta­legt of­beldi í æsku sem og höfuðáverka sem hún hlaut sem barn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert