Aftöku frestað á elleftu stundu

AFP

Dóm­ari í Indi­ana hef­ur frestað af­töku Lisu Mont­gomery á ell­eftu stundu en til stóð að hún yrði tek­in af lífi síðar í dag og um leið fyrsta kon­an sem tek­in er af lífi af banda­rísku al­rík­is­stjórn­inni í 68 ár.

Mont­gomery, sem er 52 ára göm­ul, hef­ur setið í fang­elsi í 16 ár eft­ir að hún drap þungaða konu til að stela ófæddu barni henn­ar. Af­tak­an átti að fara fram í kvöld að banda­rísk­um tíma í al­rík­is­fang­els­inu Ter­re-Haute í Indi­ana þar sem flest­ar af­tök­ur fara fram um þess­ar mund­ir. 

Lisa Montgomery.
Lisa Mont­gomery. AFP

James Hanlon, dóm­ari við Sout­hern District of Indi­ana, ákvað í gær­kvöldi að fresta af­tök­unni að beiðni lög­manna Mont­gomerys sem segja að hún sé of veik á geði til þess að vera tek­in af lífi. Hún hafi fæðst með heilaskaða og verið beitt hrylli­legri mis­notk­un í barnæsku og á unglings­ár­um.

Hanlon seg­ir í úr­sk­urðinum að gögn sem lögð voru fyr­ir dóm­inn bendi mjög til þess að and­leg heilsa Mont­gomery sé þannig að hún geri sér enga grein fyr­ir raun­veru­leik­an­um og geti alls ekki gert sér grein fyr­ir rétt­læt­ingu rík­is­stjórn­ar­inn­ar fyr­ir því að taka hana af lífi. Hags­mun­ir bæði stjórn­valda og þolenda glæps­ins eru mik­il­væg­ir þegar kem­ur að því að fram­fylgja dómi en það er líka al­manna­hag­ur að það sé tryggt að stjórn­völd taki ekki af lífi fanga sem skil­ur ekki, vegna geðheil­brigðis, ástæðu þess að dómn­um sé fram­fylgt. 

Hanlon seg­ir að dóm­ur­inn muni ákveða hvenær fjallað verður um sak­hæfi Mont­gomery. 

Mont­gomery, sem gat ekki eign­ast börn, komst í kynni við Bobbie Jo Stinn­ett á net­inu árið 2004 und­ir því yf­ir­skini að hún vildi kaupa hvolp. Stinn­ett var 23 ára göm­ul og þunguð.  Mont­gomery kom á heim­ili Stinn­ett og kyrkti hana. Síðan skar hún barnið út úr kviði henn­ar og skildi Stinn­ett eft­ir látna í blóðpolli. Árið 2007 var hún dæmd til dauða fyr­ir morðið.

Eng­in kona hef­ur verið tek­in af lífi á veg­um al­rík­is­stjórn­ar­inn­ar síðar 1953. Án þess að reyna að draga úr al­var­leika glæps­ins sem hún framdi þá sóttu lög­menn henn­ar eft­ir því við Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seta að hann sýndi henni vægð í síðustu viku. Trump hef­ur ekki brugðist við beiðni þeirra en hann er mik­ill stuðnings­maður dauðarefs­inga. 

Frá því í sum­ar hafa tíu Banda­ríkja­menn verið tekn­ir af lífi með ban­vænni sprautu í Ter­re-Haute-fang­els­inu. Síðar í vik­unni á að taka tvo til viðbót­ar af lífi. Svo get­ur farið að Mont­gomery verði ekki tek­in af lífi þar sem Joe Biden tek­ur við embætti for­seta eft­ir átta daga og hann er ein­dreg­inn and­stæðing­ur dauðarefs­inga. 

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem af­töku Mont­gomery er frestað því það var gert í nóv­em­ber eft­ir að lög­menn henn­ar greind­ust með Covid-19.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert