13 aftökur á sex mánuðum

Dustin Higgs var tekinn af lífi í nótt, 13 fanginn …
Dustin Higgs var tekinn af lífi í nótt, 13 fanginn sem bandaríska alríkisstjórnin tekur af lífi á sex mánuðum. Ljósmynd fangelsið í Terre Haute

Banda­ríska al­ríkið tók af lífi þrett­ándu mann­eskj­una á hálfu ári í dag. Þetta var um leið síðasta af­tak­an í valdatíð Don­alds Trumps í embætti for­seta. Joe Biden, sem tek­ur við embætti for­seta Banda­ríkj­anna 20. janú­ar, er á móti dauðarefs­ing­um ólíkt for­vera sín­um í starfi.

Dust­in Higgs, 48 ára gam­all fangi, var tek­inn af lífi með ban­vænni sprautu í al­rík­is­fang­els­inu í Ter­re-Haute í Indi­ana nokkr­um klukku­stund­um eft­ir að hæstirétt­ur Banda­ríkj­anna hafnaði því að fresta af­tök­unni.

New York Times seg­ir að hann hafi verið lýst­ur lát­inn klukk­an 1:23 að staðar­tíma í nótt, klukk­an 6:23 í morg­un að ís­lensk­um tíma, og vís­ar þar í til­kynn­ingu frá fang­els­is­mála­stofn­un. 

Higgs bauð þrem­ur ung­um kon­um í íbúð sína í janú­ar 1996 en hann bjó skammt frá höfuðborg­inni, Washingt­on. Jafn­framt bauð hann tveim­ur vin­um sín­um þangað. 

Þegar ein kvenn­anna hafnaði hon­um þegar hann reyndi við hana bauðst hann til að keyra þær heim en þess í stað stöðvaði hann bif­reiðina í fá­förnu nátt­úrufriðlandi fyr­ir utan borg­ina.

Sam­kvæmt dóms­málaráðuneyt­inu fyr­ir­skipaði hann vini sín­um að skjóta kon­urn­ar þrjár. Árið 2000 var hann dæmd­ur til dauða fyr­ir mann­rán og morð. Maður­inn sem skaut kon­urn­ar var dæmd­ur í lífstíðarfang­elsi án mögu­leika á reynslu­lausn.

Lögmaður Higgs, Shawn Nol­an, seg­ir í bæna­skjali sem hann sendi til Trumps að það hafi verið rangt að dæma Higgs í þyngri refs­ingu en þann sem framdi verknaðinn.

Áður hafði dóm­ari úr­sk­urðað að fresta ætti af­tök­unni vegna þess að Higgs smitaðist af Covid-19 og að vegna áhrifa veirunn­ar á lungu hans myndi hann að öll­um lík­ind­um kvelj­ast mjög þegar lyf­inu yrði dælt í hann. Dóms­málaráðuneytið áfrýjaði niður­stöðunni og hafði bet­ur. 

Í júlí hóf al­rík­is­stjórn­in að fulln­usta dauðadóma eft­ir að það hafði ekki verið gert í 17 ár. Meðal ann­ars var Lisa Mont­gomery tek­in af lífi fyrr í vik­unni en hún er fyrsta kon­an í tæp 70 ár sem er tek­in af lífi af al­rík­is­stjórn lands­ins. 

Fyrsta af­tak­an fór fram 14. júlí er Daniel Lew­is Lee var tek­inn af lífi. All­ar af­tök­urn­ar 13 voru í Ter­re Haute-fang­els­inu enda eina fang­elsi al­rík­is­stjórn­ar­inn­ar þar sem virk­ur af­töku­klefi fyr­ir­finnst. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert